23 September 2024 15:38

Brot 151 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í suðurátt, á móts við Korputorg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 945 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 149.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.