26 Ágúst 2024 17:00

Gosið sem hófst að kvöldi fimmtudagsins 22. ágúst 2024 er stærsta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni til þessa.

  • Áfram gýs á svæðinu norðaustan við Stóra-Skógfell.
  • Í upphafi eldgoss er áætlað að hraunflæði hafi verið um 1.500-2000 m3/s. Nú er það nokkrir tugir rúmmetrar á sekúndu.
  • Land seig um 40 cm þegar kvika hljóp úr Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina að kvöldi 22. ágúst sl.
  • Flatarmál hraunbreiðunnar er orðið 15,1 km.
  • Samkvæmt gasdreifingarspá verður mengun frá gosinu og gróðureldum m.a. í Svartsengi, Reykjanesbæ og Vogum.
  • Hættumat uppfært, sjá hættumatskort í viðhengi sem gildir til 29. ágúst 2024, kl. 15:00 að öllu óbreyttu.
  • Almannavarnastigið er hættustig.

Virk sprengja hefur fundist nærri gönguleið sunnan Reykjanesbrautar við upphaf eldgossins.   Var hún sprengd af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslu Íslands.   Á svæðinu sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina með ágætum árangri.   Svæðið er eftir sem áður mengað af virkum og óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif.  Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið hér manntjóni.   Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur.   Það er hins vegar aðeins fyrir  sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna.  Þá liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu né stærð þessa svæðis en Landhelgisgæsla Íslands hefur dregið upp neðangreint kort til upplýsingar.   Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta göngu- og akstursslóða.   Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi.  Það þekkja heimamenn og útivistarmenn sem gengið hafa um svæðið.   Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum nú þegar erlendir ferðamenn streyma inn á Reykjanesið til að berja gosið augum.   Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum staðreyndum á framfæri við ferðamenn.   Ferðamenn haldi sig við merktar gönguleiðir og slóða.  Gosstöðvarnar eru ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn við núverandi aðstæður.    Þá gætir mengunar frá gosi og gróðureldum.  Loftgæði nær gosstöðvum eru slæm.  Ferðamenn eru ekki allir skynsamir og skunda með börn sín inn á hættuleg svæði.  Það skyldu þeir aldrei gera.  Skipulögð bílastæði eru ekki fyrir hendi né útsýnisaðstaða.   Ökumenn leggi ekki bílum á og við Reykjanesbraut.   Við ákveðnar aðstæður getur komið til frekari takmarkana á umferð um Grindavíkurveg.

Opið er í Bláa lónið og Northern Light Inn.    Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla.  Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins.  Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins.   Fulltrúar fyrirtækjanna sitja fundi aðgerðarstjórnar og vettvangsstjórnar.    Fylgjast þarf með opnunartímum á heimasíðum fyrirtækjanna.  Þar getur þurft að rýma með skömmum fyrirvara en fyrirtækin starfa inn á skilgreindu hættusvæði Veðurstofu Íslands.  Á svæðinu er talin mikil hætta á gasmengun og gjóskufalli.    Umferð til og frá Bláa Lóninu og Northern Light Inn er sem fyrr um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg.

Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn fyrir lokunarpósta við Nesveg, Bláalónsveg og Suðurstrandarveg.  Vakin er athygli á því að inn á merkt vinnusvæði fara menn ekki nema með samþykki þeirra sem stjórna þar aðgerðum.  Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.  

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

 

Frekari upplýsingar:

  • Íbúar, starfsmenn og gestir dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi.
  • Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara.   Í Grindavík er talin mjög mikil hætta á jarðfalli ofan í sprungur, sprunguhreyfingum og gasmengun.  Þá er töluverð hætta á gjóskufalli.
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   
  • Gosstöðvarnar og hraunið sem runnið hefur er ekki aðgengilegt fyrir ferðamenn við núverandi aðstæður.

 

Framkvæmdanefnd fer með stjórn, skipulag og framkvæmd verkefna sem hér segir:

  1. Starfrækslu þjónustuteyma sem samþætta þjónustu fyrir íbúa Grindavíkurbæjar, m.a. þegar kemur að skóla- og frístundastarfi, félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu, þjónustu við eldra fólk, fatlað fólk og aðra viðkvæma hópa og stuðningi á sviði húsnæðis- og vinnumarkaðsmála. Verkefni þjónustuteyma eru m.a. að vinna tillögur og áætlanir um stuðning við íbúana og eiga samráð við móttökusveitarfélög, stjórnvöld og aðra aðila um þjónustu við þá.
  2. Töku ákvarðana um rekstur þjónustumiðstöðvar fyrir íbúa Grindavíkurbæjar og starfrækslu hennar eftir atvikum.
  3. Gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
  4. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða til að tryggja virkni, rekstur og afhendingaröryggi innviða, eftir því sem við á og fellur undir ábyrgðarsvið Grindavíkurbæjar.
  5. Könnun á jarðvegi.
  6. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða á götum, stígum og opnum svæðum sem Grindavíkurbær er ábyrgur fyrir.
  7. Yfirumsjón með vernd lausafjármuna í Grindavíkurbæ eftir því sem við á, að mati framkvæmdanefndarinnar.
  8. Framkvæmd aðgangsstýringar í Grindavíkurbæ í samvinnu við lögreglu.
  9. Upplýsingamiðlun til íbúa Grindavíkurbæjar og hagaðila um stöðu mála og framgang verkefna sem nefndin sinnir.

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.

Lokunarpóstar eru við Grindavíkurveg, Bláalónsveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Suðurstrandarveg, Nesveg, Bláalónsveg og eftir atvikum um Grindavíkurveg.  Flóttaleiðir frá Bláa Lóninu eru um Bláalónsveg og  Grindavíkurveg.  Arfadalsvíkurvegur er lokaður einbreiður malarvegur sem getur nýst ef til rýmingar kemur.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt.    Lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.  Íbúar og þeir sem eiga erindi til Grindavíkur og vilja aka Grindavíkurveg þurfa að aka inn á Bláalónsveg að Nesvegi til Grindavíkur.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.

Framangreint fyrirkomulag gildir til  29. ágúst 2024 að öllu óbreyttu.