Jafnlaunastefna Lögreglustjórans á Vesturlandi
Stefna Lögreglustjórans á Vesturlandi er að allir starfsmenn embættisins njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir jafn verðmæt störf. Enginn ómálefnalegur launamunur skal vera til staðar og skulu laun ákveðin á sama hátt fyrir alla óháð kyni eða kynvitund, sbr. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Einnig skal taka tillit til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Til að framfylgja jafnlaunastefnunni hefur embættið skjalfest, innleitt og viðhaldið stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur staðalsins ÍST85/2012. Embættið greiðir laun á grundvelli kjara- og stofnanasamninga þar sem launákvarðanir eru skjalfestar, rekjanlegar og rökstuddar. Starfsmönnum er alltaf heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef þeir kjósa svo. Jafnlaunastefna er órjúfanlegur hluti launastefnu embættisins. Lögreglustjóri ber ábyrgð á jafnlaunastefnu embættisins og að henni sé framfylgt.
Til þess að ná því markmiði hefur embættið:
• Innleitt, skjalfest og viðhaldið vottuðu jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85/2012, sbr. lög nr. 56/2017 um jafnlaunavottun.
• Framkvæmt árlega launagreiningu þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf.
• Skuldbundið sig að Bregðast strax við óútskýrðum launamun og frávikum sem kunna að koma upp varðandi launakjör í starfi. • Viðhaft virkt eftirlit og brugðist við veikleikum.
• Fylgt viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma.
• Kynnt árlega niðurstöður launagreiningar og jafnlaunastefnu fyrir starfsmönnum embættisins.
• Birt jafnlaunastefnu á opinberum vettvangi. Borgarnesi, 6. desember 2023, Gunnar Örn Jónsson
Jafnlaunastefnuna má finna hér í heild sinni.
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0300 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Umferðarslys á Vesturlandsvegi
Alvarlegt umferðarslys varð á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á níunda tímanum sunnudagskvöldið 9. júní. Fólksbifreið sem ekið var í norður skall framan á jeppabifreið sem ekið var til suðurs. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést en ökumaður og farþegi í jeppabifreiðinni voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til aðhlynningar á Landsspítalann.
Báðar bifreiðar eru ónýtar eftir slysið.
Lögreglan á Vesturlandi er með tildrög slyssins til rannsóknar.
... Sjá meiraSjá minna
5 CommentsComment on Facebook
Hræðilegt sĺys var virkilega erfitt að koma að þessu votta aðstandendum innilega samúð
Af hverju "lækar" fólk, á frétt af svona hörmulegu slysi??
❤️
❤️🙏
❤️🙏
Kæru ökumenn nú er kominn sá tími þar sem búast má við hjólreiðafólki á öllum aldri í umferðinni. Munum að sýna þeim tillitssemi og leiðbeina börnum um notkun hjálma við hjólreiðar. Með bestu kveðjum um gott hjólreiðasumar Lögreglan á Vesturlandi.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Skrifstofan í Borgarnesi verður lokuð frá 12:00 í dag, miðvikudaginn 22. maí, vegna starfsdags. Opnar aftur í fyrramálið klukkan 09:00. ... Sjá meiraSjá minna
2 CommentsComment on Facebook
Þarf að loka til að vinna😮
Gengur Siggi E kaupþings laus ennþá er hann eitthvað að sniglast þarna í kringum veiðilæk í símanum ath. maðurinn ætti alls ekki að ganga laus lögum samkvæmt