Hér er örugg leið til að senda inn gögn til lögreglunnar á Suðurlandi.
Sá sem skráir sig inn dregur skrár inn og ýtir á senda.
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 2000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Talsverður erill var hjá lögreglu nú um helgina.
12 manns voru kærðir fyrir að aka of greitt og mældist sá sem hraðast ók á 133km/klst. Einn þeirra sem ók of greitt reyndist einnig undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda. Einn ökumaður var kærður fyrir að nota ekki viðeigandi öryggisbúnað fyrir barn í bifreiðinni.
Alls voru 3 aðilar kærðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis og einn undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna.
Kannabisræktun fannst í heimahúsi, þar sem ríflega 40 kannabisplöntur voru haldlagðar.
3 þjófnaðarmál komu á borð lögreglu og í einu þeirra var um ólögráða einstaklinga að ræða.
Ein líkamsárás var kærð og er það mál til rannsóknar.
Alls voru 3 einstaklingar vistaðir í fangageymslu um helgina.
Tvö umferðarslys urðu en enginn slasaðist alvarlega. Í öðru þeirra er ökumaður grunaður um ölvun.
Alvarlegt slys var í Tungufljóti seinnipart sunnudags, þar sem karlmaður féll í ána. Mikill viðbúnaður var og náðu straumvatnsbjörgunarmenn manninum úr ánni. Reyndar voru endurlífgunartilraunir, sem ekki báru árangur.
Alls eru 111 mál skráð hjá lögreglunni á suðurlandi frá því á föstudag.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Banaslys varð í dag, þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi. Straumvatnsbjörgunarmenn náðu manninum upp úr ánni og voru strax hafnar endurlífgunartilraunir á honum, sem báru ekki árangur.
Aðstæður á vettvangi voru krefjandi, rigning og mikið vatnsmagn í ánni.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á suðurlandi.
... Sjá meiraSjá minna
14 CommentsComment on Facebook
Innilegar samúðarkveðjur 🥀
Innilegar samúðarkveðjur 😭😭💔💔😭😭😭
Innilegar samúðarkveðjur
Tilkynning barst til lögregu klukkan 15:48 um að aðili hefði fallið í Tungufljót, nálægt Geysi. Mikill viðbúnaður fór í gang og voru straumvatnsbjörgunarhópar boðaðir frá björgunarsveitum á svæðinu og höfuðborgarsvæðinu auk þyrlu landhelgisgæslunnar og sjúkrabifreiða frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Búið er að ná aðilanum upp og var hann fluttur með sjúkrabifreið af vettvangi.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um líðan hans að svo stöddu.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á suðurlandi fer með rannsókn málsins.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook