Lögreglustjórinn á Suðurlandi ábyrgist að jafnlaunastjórnunarkerfi embættisins sé í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020. Embættið greiðir laun eftir umfangi og eðli starfa og tekur mið af þeim kröfum sem þau gera óháð kyni. Launaákvarðanir eru byggðar á kjara- og stofnanasamningum, studdar rökum og tryggja að sömu laun séu greidd fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Bregðast skal við með stöðugum umbótum ef óútskýrður kynbundinn launamunur kemur í ljós. Jafnlaunastjórnunarkerfið nær til alls starfsfólks.
Yfirlögregluþjónn stoðdeildar er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunastjórnunarkerfi og er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi þess.
Með innleiðingunni skuldbindur embættið sig til þess að:
Innleiða vottað jafnlaunastjórnunarkerfi, skjalfesta og viðhalda í samræmi við
staðalinn ÍST 85.
Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru hverju sinni.
Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða
jafnverðmæt störf til að ganga úr skugga um hvort óútskýrður kynbundinn
launamunur sé til staðar.
Kynna starfsfólki niðurstöður launagreiningar sem er til úttektar árlega.
Bregðast við frávikum, athugasemdum og ábendingum með stöðugum umbótum
og eftirfylgni.
Framkvæma innri úttekt árlega.
Halda rýnifund stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og
rýnd.
Birta stefnuna á innri vef og kynna hana öllu starfsfólki.
Tryggja aðgengi almennings að stefnunni á vefsíðunni www.logreglan.is.
Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna.
21.02.2024
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 2000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Við viljum vekja athygli á því að hægt er að mæta til að fá skilríki staðfest vegna umsóknar um kennitölu, án þess að bóka tíma, klukkan 13:00 á eftirfarandi lögreglustöðvum, eftirfarandi daga:
Vík
▪️ Miðvikudaginn 03.07
▪️ Þriðjudaginn 16.07
Kirkjubæjarklaustur
▪️ Mánudaginn 08.07
▪️ Mánudaginn 15.07
▪️ Miðvikudaginn 17.07
Fyrirvari við þetta er gerður ef upp koma útköll lögreglu á sama tíma.
Aðrar afgreiðslur lögreglustöðva eru opnar á skrifstofutíma og tímapantanir óþarfar.
... Sjá meiraSjá minna
Flutningur til Íslands | Þjóðskrá
Hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem vilja flytja lögheimili sitt til Íslands.0 CommentsComment on Facebook
Gleðilega þjóðhátíð 🇮🇸 ... Sjá meiraSjá minna
2 CommentsComment on Facebook
🇮🇸🇮🇸🇮🇸
🇮🇸🇮🇸🫡🫡🚔🚔