Rannsóknardeild er á Fáskrúðsfirði sem sinnir öllu starfssvæðinu. Þar eru stærri brot og umfangsmeiri rannsökuð. Önnur mál eru að jafnaði til rannsóknar í almennri deild. Netfang rannsóknardeildar er rannsoknaustur@logreglan.is .
Elvar Óskarsson lögreglufulltrúi stýrir rannsóknardeild embættisins, netf. elvar@logreglan.is
Rannsóknardeild
Eskifjörður/Fáskrúðsfjörður
735 Eskifjörður
Þjónustusími: 444 0650
Netfang: rannsoknaustur@logreglan.is
Fax: 444 0601
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Vegagerðin varar á vef sínum við blikblæðingum vegna hlýinda. Fram kemur að blæðinga hafi orðið vart á Fagradal og hraði takmarkaður við 50 km/klst á kafla. Vegfarendur eru beðnir að sýni tillitssemi og aka með gát.
... Sjá meiraSjá minna
5 CommentsComment on Facebook
Vegurinn er í svoleiðis ástandi að það hefði átt að loka honum. Að fara þarna um kostar mann mikil þrif þó svo að maður keyri á 50 km/klst, en á móti sleppur maður kannski við slys. Vegagerðin setti þetta ekki í loftið fyrr en það var búið að hringja og kvarta þó svo að þetta væri búið að vera lengi.
Þessi vegur er bara ófær þarna, hvert klúðrið á eftir öðru í boði Vegagerðarinnar, það er bara kraftaverk ef maður kemst eina ferð þarna yfir þessa dagana án stórskemmda, um daginn dreifði sanddreifabíll stórgrýti og sandi á fleygiferð yfir alla bíla sem hann mætti og nú er verið að leggja enn eina handónýtu klæðninguna á veginn með tilheyrandi grjótkasti frá bjánunum sem ekki virða hraðatakmarkanir! Af öllu þessu rugli er sennilega blæðingin skásti kosturinn því miður!
Ber Vegagerðin enga ábyrð ef þeir henda bara niður skilti og setja tilkynningu á vefinn hjá sér……eitthver sem getur svarað því
Helvítis laxeldi 🤣🤣🤣
Hvernig verðir ástandið í sumar þegar það verður sól og hiti yfir 10°c í marga daga? Á ekki lögreglan að hantaka þá sem vísvitandi setja aðra i hættu? Þessi íblöndunarefni sem vegagerðin er að nota er stórhættuleg.
Mynd hér að neðan sýnir fjölda tilkynninga til lögreglunnar á Austurlandi árin 2022 og 2023 um að ekið hafi verið á búfé.
Lögreglan hvetur ökumenn til að vera á varðbergi, ekki síst yfir sumarmánuðina þegar hættan er mest.
... Sjá meiraSjá minna
3 CommentsComment on Facebook
Og þetta eru bara tilkynnt tilvik, er vafalítið meira og miklu meira á villt dýr.
Mikið af aðalveginum er afgirt en viðhald á girðingunum er ekki í lagi
Búfé er nytjaskepnur á búi, t.d. kindur, kýr, geitur, svín.
Við erum ákaflega stolt af því að eiga 5 lögreglumenn í flottum
hópi sem útskrifaðist um síðustu helgi úr löggæslu- og lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri.
Óskum nýúskrifuðum lögreglumönnum til hamingju með áfangann og velfarnaðar í starfi.
Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu
... Sjá meiraSjá minna
18 CommentsComment on Facebook
Bara dásamlegt! Farnist þeim öllum vel í starfi!
Til hamingju🌹🌹🌹🌹🌹
Innilegar hamingjuóskir með þetta glæsilega fólk.🌷
Til hamingju með áfangann öll sem eitt. 💞
Til hamingju 🌞