Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Vonskuveður framundan 🌨❄️🌪
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular veðurviðvaranir fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði í dag, föstudag 15. nóvember frá kl. 14:00 til kl. 14:00 á morgun, laugardag.
Útlit er fyrir norðan og norðvestan hvassviðri, 15-28 m/s með snjókomu og lélegu skyggni og má búast við enn sterkari vindhviðum.
Gera má ráð fyrir samgöngutruflunum og varasömu ferðaveðri og að samgöngur milli landshluta raskist, búast má við að fjallvegum verði lokað.
Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með færð á vegum og veðurspá áður en haldið er af stað á meðan veðrið gengur yfir og að vera ekki á ferðinni að nauðsynja lausu.
Förum varlega, fylgjumst vel með og komum heil heim.
www.umferdin.is
www.vedur.is
... Sjá meiraSjá minna
Forsíða Veðurstofu Íslands | Veðurstofa Íslands
Austan og suðaustan 10-18 m/s og rigning, sunnan 15-23 undir morgun, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Snýst í suðvestan 20-28 með sk...0 CommentsComment on Facebook
Lögreglan brýnir enn fyrir foreldrum og forráðamönnum barna og ungmenna að huga að endurskinsmerkjum fyrir börn sín. Einnig að ljósabúnaði á reiðhjól barna sinna, en úr hvoru tveggja má bæta.
Óþarfi er að fjölyrða um að hið sama gildir einnig um fullorðna vegfarendur í skammdeginu sem nú grúfir yfir.
Þá eru ökumenn af sama tilefni beðnir um að gæta að sér, ekki síst innanbæjar í grennd við leik- og grunnskóla.
Vegfarendur, - förum varlega, hjálpumst að og tryggjum þannig að öll komumst við heil heim.
... Sjá meiraSjá minna
2 CommentsComment on Facebook
Við bjóðum öllum þeim sem vilja að koma við hjá okkur í VÍS á Egilsstöðum og sækja sér endurskinsmerki alveg ókeypis - nóg til!
Mikilvæg ábending en allt of fáir sem fara eftir henni því miður
Ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægi þess að ökumenn og farþegar séu ávallt með öryggisbelti spennt. Engu að síður hefur aðeins borið á því að ekki sé nægjanlega hugað að þessum atriðum hvað varðar til að mynda bílbeltanotkun barna á leik- og grunnskólaaldri. Lögregla hefur rætt við foreldra vegna þessa, ökumenn, og þeir þá helst borið því við að um stutta vegalengd sé að ræða og innanbæjar.
Ástæða þykir af þessum sökum til að árétta mikilvægi beltanna hvort heldur farið er um skamman veg eða lengri og ábyrgð foreldra í þeim efnum.
Förum öll varlega, komum heil heim.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook