Embætti ríkislögreglustjóra var stofnað 1. júlí 1997 er ný lögreglulög nr. 90/1996 tóku gildi. Þá var rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður og flest verkefni hennar færð til lögreglustjóra í héraði og ríkislögreglustjóra. Ýmis stjórnsýsluverkefni lögregludeildar dómsmálaráðuneytisins færðust einnig til embættis ríkislögreglustjóra. Með lögreglulögunum var stigið mikilvægt skref til grundvallarbreytinga á skipulagi æðstu stjórnar lögreglunnar og starfsemi lögreglunnar í landinu.
Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun embættis ríkislögreglustjóra hefur embættið tekið miklum breytingum, ekki síst vegna nýrra viðfangsefna sem að mati löggjafans falla vel að starfsemi þess. Einkum er um að ræða viðfangsefni sem færðust frá dómsmálaráðuneytinu og lögreglustjóranum í Reykjavík til ríkislögreglustjóra og vegna nýrrar Sirene-skrifstofu á Íslandi í tengslum við Schengen-samstarfið.
Innri málefni lögreglunnar í landinu og rekstur embættis ríkislögreglustjóra hafa sífellt verið í skoðun og breytingar verið gerðar með það að markmiði að ná fram betri nýtingu á mannafla og fjármunum, skerpa betur skil milli einstakra viðfangsefna og ná fram nýjum áherslum. Má fullyrða að vel hafi tekist til í þessum efnum.
Ein leið sem farin hefur verið til að gefa góða yfirsýn yfir þróun embættisins og rekstur eru ítarlegar ársskýrslur þar sem glöggt má sjá áherslur embættisins á mismunandi tímum. Einnig hefur embættið komið upp lögregluvefnum svonefnda á veraldarvefnum sem bæði þjónar almenningi og lögreglunni. Ríkislögreglustjóri, lögreglustjórarnir og Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar hafa hver fyrir sig heimasíðu sem allar tengjast sem ein heild. Almenningur hefur þannig aðgang að upplýsingum um lögregluna, þar á meðal um embætti ríkislögreglustjóra og lögreglumenn um land allt hafa aðgang að mikilvægum upplýsingum á innri vef embættisins.