Almannavarnir snúast um það skipulag og stjórnkerfi sem er virkjað á hættustundu. Samkvæmt 1. gr. laga um almannavarnir Nr. 82/2008 er markmið þeirra að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir eða takmarka, eftir því sem unnt er að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni eða umhverfi og eignir verði fyrir tjóni, af völdum náttúruhamfara eða af mannavöldum farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum, veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns, sem hugsanlega kann að verða eða hefur orðið.
Lögin taka til samhæfðra almannavarnaviðbragða til þess að takast á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og eignum
Löggjöfin kveður á um víðtækt samstarf við aðila sem hafa það sameiginlega markmið að tryggja öryggi almennings með öflun upplýsinga ásamt vöktun, greiningu og mati á hættu.
Til að takast á við það hlutverk sem lögin gera ráð fyrir þurfa almannavarnir m.a.:
- að greina og meta hugsanlegar afleiðingar náttúruvár, umhverfisóhappa, hópslysa og heilsu, fjarskipta- og tölvuhruns, auk hryðjuverka.
- að upplýsa almenning um hættur í þjóðfélaginu, hvernig eigi að varast þær og draga úr afleiðingum þeirra.
- að vara almenning við yfirvofandi hættu í þjóðfélaginu og upplýsa hvernig almenningur geti brugðist við henni
- að hafa umsjón með að viðbragðsráætlanir og rýmingaráætlanir séu útbúnar í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
- að samhæfa, undirbúa og framkvæma æfingar og þjálfun viðbragðsaðila
- að bregðast hratt og örugglega við neyðarástandi og sjá til þess að nauðsynleg úrræði séu til staðar
- að stjórna aðgerðum þegar neyðarástand skapast í landinu
- að vinna með viðbragðsaðilum, fjölmiðlum, almenningi, vísindamönnum og stjórnvöldum með það að markmiði að lágmarka tjón af völdum áfalla
- að aðstoða við enduruppbyggingu eftir áfall og koma aftur á eðlilegu ástandi í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
- að vinna á alþjóðlegum vettvangi að uppbyggingu og eflingu almannaöryggis.
Nánari upplýsingar má finna hjá almannavarnir.is