Götum lokað á morgun í tengslum við Norðurlandaráðsþing
Dagana 28. – 31. október verður þing Norðurlandaráðs 2024 haldið í Reykjavík. Þingið fer fram á Alþingi og í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Friður og …
Dagana 28. – 31. október verður þing Norðurlandaráðs 2024 haldið í Reykjavík. Þingið fer fram á Alþingi og í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Friður og …
Brot 79 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í norðurátt, við Þverársel. Á einni …
Karlmaður um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. nóvember á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu …
Minnum á þessar lokanir sem hefjast kl 07 í fyrramálið.Vegna fundar forsætisráðherra Norðurlandanna verða verulegar takmarkanir á umferð ökutækja og hjólandi vegfarenda um Þingvelli mánudaginn 28. október. Þá verður öll umferð gangandi vegfarenda bönnuð.
Fundurinn er haldinn í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem er haldið í sömu viku.
Það verður heimilt að aka til austurs um Þingvallaveg en lokað verður fyrir umferð til vesturs frá gatnamótum Þingvallavegar/Lyngdalsheiðar að gatnamótum Þingvallavegar/Grafningsvegar.
Allri umferð til vesturs um Lyngdalsheiði frá Laugarvatni verður beint til suðurs við áðurnefnd gatnamót og niður á Biskupstungnabraut
Þjónustumiðstöð á Leirum verður opin en Vallavegur frá þjónustumiðstöð verður lokaður. Öll umferð um Þinghelgi verður óheimil, auk þess sem aðkoma að Haki og Silfru verða lokuð.
Lokanir taka gildi kl. 07:00 mánudaginn 28. október og gilda til miðnættis.
... Sjá meiraSjá minna
1 CommentComment on Facebook
Ef ég ætla á Laugarvatn mánudaginn 28. okt. þarf ég þá að fara um Hellisheiði? Eða get ég farið um Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði?
Norðurlandaráðsþing í Reykjavík - lokunarsvæði 28. - 30. október ... Sjá meiraSjá minna
2 CommentsComment on Facebook
Verður lokað hjá brúni hjá Urriðaholtinu í Garðabæ. ?
Varðandi vőruafhendingar á lokaða svæðinu....hvernig verður því háttað ?
Í dag hefst rjúpnaveiðitímabil en við hvetjum fólk til að kynna sér reglur um rjúpnaveiði, hvert á sínu svæði, á vef Umhverfisstofnunar.
Við minnum veiðimenn einnig á að skylda er að vera með gilt skotvopnaleyfi auk þess að geyma skotvopn með tryggilegum hætti í viðurkenndum skotvopnaskáp, en hann er skyldueign hvers skotvopnaeiganda. Þá er einnig mikilvægt að tryggja að vopn séu tryggilega afhlaðin áður en gengið er frá vopnum að lokinni notkun, en auk þess skulu skotvopn vera óhlaðin þegar þau eru nær „vélknúnu farartæki á landi en 250m“ líkt og segir í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Komum heil heim af veiðum.
Frekari upplýsingar er að finna í tengli hér að neðan á vef Umhverfisstofnunar.
Mynd: Ólafur Karl Nielsen
... Sjá meiraSjá minna
6 CommentsComment on Facebook
Friða þennan fugl takk. Þetta er komið í algjört rugl
þetta teljast varla vopn frekar veiðitæki t.d . Ekki er bíll vopn þó hann sé stórhættulegur ef beitt illa.
Skítaveður og öruggast að halda sig heima
Hunt for phi and thy… damage on the 🧬