26 Mars 2009 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni í nótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 200 kannabisplöntur. Um þriðjungur þeirra var á lokastigi ræktunar. Rannsókn málsins er á frumstigi.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.