Lögreglan á Vesturlandi Jafnlaunastefna lögreglustjórans á Vesturlandi

Jafnlaunastefna Lögreglustjórans á Vesturlandi

Stefna Lögreglustjórans á Vesturlandi er að allir starfsmenn embættisins njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir jafn verðmæt störf. Enginn ómálefnalegur launamunur skal vera til staðar og skulu laun ákveðin á sama hátt fyrir alla óháð kyni eða kynvitund, sbr. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Einnig skal taka tillit til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Til að framfylgja jafnlaunastefnunni hefur embættið skjalfest, innleitt og viðhaldið stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur staðalsins ÍST85/2012. Embættið greiðir laun á grundvelli kjara- og stofnanasamninga þar sem launákvarðanir eru skjalfestar, rekjanlegar og rökstuddar. Starfsmönnum er alltaf heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef þeir kjósa svo. Jafnlaunastefna er órjúfanlegur hluti launastefnu embættisins. Lögreglustjóri ber ábyrgð á jafnlaunastefnu embættisins og að henni sé framfylgt.

Til þess að ná því markmiði hefur embættið:

• Innleitt, skjalfest og viðhaldið vottuðu jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85/2012, sbr. lög nr. 56/2017 um jafnlaunavottun.
• Framkvæmt árlega launagreiningu þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf.
• Skuldbundið sig að Bregðast strax við óútskýrðum launamun og frávikum sem kunna að koma upp varðandi launakjör í starfi. • Viðhaft virkt eftirlit og brugðist við veikleikum.
• Fylgt viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma.
• Kynnt árlega niðurstöður launagreiningar og jafnlaunastefnu fyrir starfsmönnum embættisins.
• Birt jafnlaunastefnu á opinberum vettvangi. Borgarnesi, 6. desember 2023, Gunnar Örn Jónsson

Jafnlaunastefnuna má finna hér í heild sinni.

Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0300 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

Lögreglan á Vesturlandi Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Þann 16 desember ætlar Lögreglan á Vesturlandi að heimsækja alla 5. bekki í umdæminu og leggja fyrir krakkana skemmtilega umferðargetraun. Einn heppinn nemandi í hverjum bekk fær svo verðlaun á aðfangadag frá lögreglunni. 👮👮‍♂️🎅🏻 ... Sjá meiraSjá minna

Þann 16 desember ætlar Lögreglan á Vesturlandi að heimsækja alla 5. bekki í umdæminu og leggja fyrir krakkana skemmtilega umferðargetraun.  Einn heppinn nemandi í hverjum bekk fær svo verðlaun á aðfangadag frá lögreglunni. 👮👮‍♂️🎅🏻

Alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í bílslysum var í gær. Lögreglan á Vesturlandi tók þátt í minningarathöfn á Hvanneyri þetta árið með öðrum viðbragðsaðilum á svæðinu.

Munum að fara varlega í umferðinni. ❤️
... Sjá meiraSjá minna

Alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í bílslysum var í gær.  Lögreglan á Vesturlandi tók þátt í minningarathöfn á Hvanneyri þetta árið með öðrum viðbragðsaðilum á svæðinu.  

Munum að fara varlega í umferðinni. ❤️Image attachmentImage attachment

Endurmenntun atvinnubílstjóra – sektir og kyrrsetning.

Í 10. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er kveðið á um að ökumenn sem stjórna ökutækjum í C1-, C-, D1- og D-flokki til farþega- og farmflutninga í atvinnuskyni skuli gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti.

Hinn 1. desember næstkomandi hyggst lögreglan á Vesturlandi kæra ökumenn sem ekki hafa lokið tilskilinni endurmenntun og búast má við sektum.

Frá sama tíma mega ökumenn og flytjendur jafnframt búast við að hafi ökumaður ekki lokið tilskilinni endurmenntun verði ökutækið kyrrsett þar til ökumaður sem uppfyllir skilyrðin tekur við akstri.
... Sjá meiraSjá minna

6 CommentsComment on Facebook

Þið vitið að þeir sem tóku meiraprófið fyrir 2019 eru ekki að missa nein réttindi

Getur Lögreglan Vesturlandi upplýst hvaða lagagrein hún hyggst nýta sér til að kyrrsetja ökutæki ef ökumaður hefur ekki lokið tilskilinni endurmenntun?

Lögreglan Vesturlandi eru þið að fara eftir lögum sem eru fallinn úr gildi áður en tóku gildi ??

Hér er tilvísunarnúmerið. Megið gjarnan fletta þessu upp, ykkur til upprifjunar.

View more comments

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram