Lögreglustjóri ber ábyrgð á launastefnu embættisins. Hann ber einnig ábyrgð á jafnlaunastefnu og að lagalegum kröfum og kröfum Jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 sé framfylgt. Yfirlögregluþjónn er tilnefndur fulltrúi lögreglustjóra varðandi jafnlaunakerfið.
Embættið greiðir laun eftir umfangi og eðli starfs og tekur mið af kröfum sem störf gera um þekkingu, hæfni og ábyrgð.
Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við lög, reglur og kjara- og stofnanasamninga, studdar rökum og tryggt að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafn verðmæt störf.
Gæta skal að því við ákvörðun launa og annarra starfskjara og hlunninda að ekki sé mismunað á grundvelli kyns, eða að önnur ólögmæt mismunun eigi sér stað á grundvelli persónubundinna atriða eða annarra ólögmætra þátta. Jafnræðis skal gætt við úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum, tækifæri til símenntunar, veitingu tækifæra til að axla ábyrgð og ákvarðana varðandi framgang í störfum og uppsagnir.
Tryggja skal öllum jafna möguleika til starfa, ábyrgðar, launa, stöðuhækkana, endurmenntunar og starfsþjálfunar.
Launastefnan samræmist mannauðsstefnu embættisins/lögreglu.
Stjórnendur leggja áherslu á sífelldar umbætur, eftirlit og viðbrögð og starfsmenn hvattir til að koma þar að málum.
Umfang og eðli starfs hefur áhrif á laun og ræðst fyrst og fremst af fjórum þáttum, hæfni, ábyrgð, álagi og vinnuaðstæðum en einnig af persónubundnum þáttum; viðbótarmenntun er nýtist í starfi, sérstöku bakvaktarálagi, þjálfun og handleiðslu.
Starfslýsingar skulu vera til um öll störf embættisins. Þar skulu koma fram allir meginþættir starfs, svo sem kröfur um menntun, hæfni, reynslu og þá ábyrgð sem í starfinu felst auk upplýsinga um starfaflokk samkvæmt stofnanasamningi.
Ákvarðanir um launabreytingar eru teknar af lögreglustjóra, sem fer yfir laun allra starfsmanna embættisins árlega til að tryggja að samræmis sé gætt í launagreiðslum.
Starfsmenn geta fengið viðtal við lögreglustjóra um endurskoðun launa. Telji lögreglustjóri þörf á endurskoðun að loknum fundi hefur hann samráð við yfirlögregluþjón og skrifstofustjóra um framhald málsins.
Markmið embættisins er að tryggja öllum starfsmönnum jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Tryggja skal öllum jafna möguleika til starfa, ábyrgðar, launa, stöðuhækkana, endurmenntunar og starfsþjálfunar.
Til að ná þessum markmiðum skal embættið:
Innleiða jafnlaunakerfi, skjalfesta og viðhalda því.
-Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að greina hugsanlegan kynbundinn launamun og kynna starfsfólki helstu niðurstöður.
Bregðast við frábrigðum sem fram koma með stöðugum umbótum og eftirliti.
Árlega verði gerð innri úttekt og að verkefnastjórn rýni stöðuna á jafnlaunakerfinu og aðgerðaráætlun verði yfirfarin og uppfærð eftir þörfum.
Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta hlítni við lög.
Jafnlaunastefnan verði árlega kynnt öllu starfsfólki og hún gerð aðgengileg öllum á vefsíðu LAL.
Lögreglustjóri ber ábyrgð á launastefnu embættisins. Hann ber einnig ábyrgð á jafnlaunastefnu og að lagalegum kröfum og kröfum Jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 sé framfylgt. Yfirlögregluþjónn er tilnefndur fulltrúi lögreglustjóra varðandi jafnlaunakerfið.
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Lögreglustjórinn á Austurlandi ritar grein í Austurfrétt í tilefni áramóta. Litið er yfir farinn veg, verkefni síðustu ára og mikilvægi samvinnu og samstarfs. Þá er dáðst að elju, æðruleysi og dugnaði íbúa í þeim stóru og erfiðum málum sem samfélagið hér fyrir austan hefur tekist ... Sjá meiraSjá minna
Góð samvinna við íbúa skiptir lögreglu höfuðmáli
Um áramót staldra ég gjarnan við og lít yfir farinn veg. Síðasta ár var krefjandi fyrir lögreglu og íbúa umdæmisins með mörgum stórum og vandasömum málum er upp komu. Þakklæti er m�...0 CommentsComment on Facebook
Bráðabirgðatölur lögreglunnar á Austurlandi fyrir árið 2024 varðandi helstu málaflokka liggja nú fyrir.
Hegningarlagabrotum fækkar lítillega frá árinu 2023 en eru svipuð að fjölda og þau voru að meðaltali frá árinu 2015. Sama á við um eignaspjöll, auðgunar- og ofbeldisbrot, en
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Þó ekkert bendi til veðrabrigða næstu daga minnir lögregla engu að síður á rýmingarspjöldin sem dreift var fyrir all nokkru í hús á Eskifirði, í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Á þeim má finna leiðbeiningar um það hvað helst ber að hafa í huga þegar hús er yfirgefið. Þá er það einn ... Sjá meiraSjá minna
1 CommentComment on Facebook
Hvar færðu það á PDF formi ?