2 Apríl 2017 14:36
Kl. 22:37 í gærkvöldi barst Neyðarlínu tilkynning um slys í Hveragerði þar sem drengur, sem virðist hafa verið einn að leik, fæddur 2006, hafði klemmst af vörulyftu á vöruflutningabíl við heimili hans þar. Lögregla og sjúkralið fór þegar á staðinn en tilraunir til endurlífgunar drengsins báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi og tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins.
Ekki er unnt að veita nánari upplýsingar um slysið að svo stöddu né heldur um nafn drengsins.