24 Maí 2008 12:00
Laust eftir kl. 10:00 í morgum stóð þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Líf togskipið Smáey VE að meintum ólöglegum veiðum út á Lónsbugt við Hvítinga. Skipið er talið hafa verið að veiðum innan við 3 sml. frá landi. Skipinu var vísað til Hafnar í Hornafirði þar sem málið verður rannsakað frekar af lögreglunni á Höfn. Málið er á forræði lögreglustjórans á Eskifirði.