![Mynd](https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/01/1_nordurljos.jpg)
Lögreglustöðin í Neskaupstað
Melagata 2a
740 Neskaupstað
Þjónustusími: 444 0620
Netfang: austurland@logreglan.is
Fax: 444 0601
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0600 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Mikið er ævinlega um að vera hjá lögreglu, tollgæslu og hafnaryfirvöldum þegar Norræna kemur til hafnar á Seyðisfirði. Svo var og í gær þegar rétt um 900 farþegar komu til landsins á fimm hundruð bílum, bifhjólum og reiðhjólum. Allt gekk vel fyrir sig og fengu ökumenn stærri ökutækja og bifhjóla meðal annars stuttan fyrirlestur og bækling um bann við utanvegaakstri. Virtust ökumenn vel meðvitaðir um þær reglur er gilda.
Lögreglan óskar ferðalöngum öllum góðrar og farsællar ferðar um landið.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Vegagerðin varar á vef sínum við blikblæðingum vegna hlýinda. Fram kemur að blæðinga hafi orðið vart á Fagradal og hraði takmarkaður við 50 km/klst á kafla. Vegfarendur eru beðnir að sýni tillitssemi og aka með gát.
... Sjá meiraSjá minna
7 CommentsComment on Facebook
Vegurinn er í svoleiðis ástandi að það hefði átt að loka honum. Að fara þarna um kostar mann mikil þrif þó svo að maður keyri á 50 km/klst, en á móti sleppur maður kannski við slys. Vegagerðin setti þetta ekki í loftið fyrr en það var búið að hringja og kvarta þó svo að þetta væri búið að vera lengi.
Þessi vegur er bara ófær þarna, hvert klúðrið á eftir öðru í boði Vegagerðarinnar, það er bara kraftaverk ef maður kemst eina ferð þarna yfir þessa dagana án stórskemmda, um daginn dreifði sanddreifabíll stórgrýti og sandi á fleygiferð yfir alla bíla sem hann mætti og nú er verið að leggja enn eina handónýtu klæðninguna á veginn með tilheyrandi grjótkasti frá bjánunum sem ekki virða hraðatakmarkanir! Af öllu þessu rugli er sennilega blæðingin skásti kosturinn því miður!
Ber Vegagerðin enga ábyrð ef þeir henda bara niður skilti og setja tilkynningu á vefinn hjá sér……eitthver sem getur svarað því
Og á meðfylgjandi mynd má sjá starfsmenn vegagerðarinnar á leið sinni að skoða aðstæður - siglandi, enda bátar ætlaðir til að ferðast á fljótandi yfirborðum eins og eru gjarnan á þessum vegum..
Helvítis laxeldi 🤣🤣🤣
Mynd hér að neðan sýnir fjölda tilkynninga til lögreglunnar á Austurlandi árin 2022 og 2023 um að ekið hafi verið á búfé.
Lögreglan hvetur ökumenn til að vera á varðbergi, ekki síst yfir sumarmánuðina þegar hættan er mest.
... Sjá meiraSjá minna
3 CommentsComment on Facebook
Og þetta eru bara tilkynnt tilvik, er vafalítið meira og miklu meira á villt dýr.
Mikið af aðalveginum er afgirt en viðhald á girðingunum er ekki í lagi
Búfé er nytjaskepnur á búi, t.d. kindur, kýr, geitur, svín.