Lögreglan á Vestfjörðum
Aðalstræti 92
450 Patreksfirði
Beinn sími: 444 0430
Þjónustusími allan sólarhringinn: 444 0400
Netfang: vestfirdir@logreglan.is
Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0400 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.
Veðurspáin fyrir daginn í dag - Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð.
Lögreglan á Vestfjörðum vill vekja athygli á slæmri veðurspá fyrir daginn í dag á Vestfjörðum. En Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun.
Í þessum veðuraðstæðum, ef veðurspáin gengur eftir, aukast líkur á snjóflóðum úr Raknadalshlíð í Patreksfirði og Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði, ofan veganna sem þar liggja eftir hlíðunum.
Vegfarendur eru hvattir til að miða ferðalög sín í samræmi við aðstæður og veðurspá. En ef veðurspáin gengur eftir má búast við því að loka þurfi vegum undir þessum hlíðum, til að tryggja öryggi.
Þá má búast við slæmum akstursskilyrðum annars staðar á Vestfjörðum, einkum á heiðum.
umferdin.is/landshluti/vestfirdir
www.vedur.is/vidvaranir
... Sjá meiraSjá minna
vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands
© Veðurstofa Íslands | Bústaðavegi 7-9 | 105 Reykjavík | Sími 522 6000 | Kennitala 630908-0350 Hafa samband | Starfsfólk | Notkunarskilmálar | Veftré | Spurt og svarað um vefinn | Persónuv...0 CommentsComment on Facebook
Veðurspáin næstu daga.
Lögreglan á Vestfjörðum vill vekja athygli á veðurspá fyrir morgundaginn (fimmtudaginn) og næstu daga. En Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun, sjá nánar hér í meðfylgjandi hlekk.
Hvatt er til þess að þau sem hyggja á ferðir milli byggðalaga skoði vel veður og færð og veðurspá. Það má gera bæði með því að skoða heimasíðu Vegagerðin, umferdin.is og einnig með því að hafa samband við upplýsingasíma hennar, sem er 1777.
umferdin.is/landshluti/vestfirdir
www.vedur.is/vidvaranir
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Raknadalshlíð og Kleifaheiði - lokun - snjóflóðahætta.
Veginum um Raknadalshlíð í Patreksfirði og Kleifaheiði var lokað nú í kvöld. Snjóflóð hafa fallið á þessu svæði og er talin hætta á fleiri flóðum næstu klukkustundirnar.
Í fyrramálið verður staðan metin með opnun í huga.
Vegfarendur sem þurfa að fara þessa vegi eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum um veður og færð á vefsíðunni umferdin.is, sjá hlekkinn hér að neðan.
umferdin.is/kafli/90530
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook