Internetið er stór hluti af daglegu lífi okkar þar sem við vinnum, eigum samskipti, lærum og skemmtum okkur. Þó það bjóði upp á fjölmörg tækifæri, þá felur það einnig í sér ákveðnar áhættur. Lögreglan vill minna á mikilvægi þess að gæta öryggis á netinu til að forðast svik, netárásir og óæskileg samskipti.

Börn og netnotkun

Sérlega mikilvægt er að huga að börnum og netnotkun þeirra. Heimili og skólar leggja mikið á sig að skapa börnum heilnæmt og öruggt umhverfi. Slíkt þarf líka að gera þegar kemur að netnotkun barna.

Hér eru nokkrar góðar og gildar reglur sem er gott að temja sér.

  • Staðsetjið tölvuna á opnu svæði, ekki í  herbergjum barnanna.
  • Athugið að flestar þessara leiðbeininga eiga einnig við um snjallsíma barna.
  • Eyddu tíma í að vafra um á netinu með barninu og leyfðu því að kenna þér hvernig netið virkar
  • Ræðið við barnið um hugsanlegar hættur er leynast á netinu.
  • Kennið barninu á jákvæðan og öruggan hátt að umgangast netið.
  • Setjið reglur um að bannað sé að gefa upp persónulegar upplýsingar eins og:
Nafn
Heimilisfang
Símanúmer
Senda myndir
Í hvaða skóla þau ganga
Nöfn annarra heimilismanna
  • Leyfið barninu ekki að umgangast „netvini” nema að segja ykkur frá þeim og jafnvel að ykkur viðstöddum.
  • Sýnið netnotkun barnsins áhuga og hvetjið það til að vafra á síðum sem er á áhugasviði þess líkt og leitað væri eftir góðu sjónvarpsefni.
  • Fjárfestið í öryggisloka sem lokar þeim svæðum sem óæskileg eru börnum t.a.m. erlendum klámsíðum.
  • Skoðið ferilskrána reglulega til að sjá hvar barnið hefur verið að vafra.

Ef barn verður fyrir netbroti, hafið þá samband við skóla, barnaverndarþjónustu eða lögreglu.

Samfélagslögreglumenn sinna fræðslu og forvörnum vegna netöryggis, sjá nánar.


Ef þú þarft aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112

 

Undirsíður