Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu veitir starfsleyfi til áfengisheildsölu. Slíkt leyfi er veitt með heimild í áfengislögum nr. 75/1998 sbr. reglugerð um framleiðslu, innflutning og heildsölu áfengis í atvinnuskyni nr. 176/1999 .
Áfengisheildsöluleyfi er veitt í fyrsta skipti til eins árs og kostar kr. 50.000,- Umsækjandi þarf að vera fyrirtæki skráð hjá Ríkisskattstjóra og í umsókn þarf að tilgreina stjórn þess og sérstakan ábyrgðarmann fyrir leyfinu. Með umsókn þarf að fylgja staðfesting frá Ríkisskattstjóra um skráninguna og um virðisaukskattsnúmer. Þá þurfa að koma fram upplýsingar um birgðastöð ef hún er önnur en tollvörugeymsla. Áfengisgjald, sem miðast við magn og styrkleika áfengis, er greitt við tollafgreiðslu. Sérstakt eftirlitsgjald , kr. 5.500,- er innheimt árlega.
Helstu reglur eru að ekki má auglýsa áfengi, ekki selja áfengi til annarra en ÁTVR, tollfrjálsra verslana, áfengisframleiðenda, annarra heildsala og til þeirra sem hafa fast vínveitingaleyfi í gildi. Heildsalar hafa einnig rétt til útflutnings. Skylt er að senda til Hagstofunnar skýrslu ársfjórðungslega um allan innflutning, önnur áfengiskaup til endursölu og hvert áfenginu er ráðstafað. Brot á ofangreindum reglum geta varðað afturköllun leyfis.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fyrir starfsleyfi á grundvelli áfengislaga eru veittar á skrifstofu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu .