Flestar síður sem finnast á internetinu og innihalda barnaklám eru hýstar á netþjónum erlendis. Fyrir nokkru síðan tóku samtökin Barnaheill upp samstarf við erlend samtök um verkefnið ,,Stöðvum barnaklám".
Á síðu samtakanna, undir liðnum ,,Stöðvum barnaklám", er hægt að tilkynna um þessar síður sem menn finna á netinu sem innihalda barnaklám. Samtökin senda þessar upplýsingar til samstarfsaðila erlendis.
Ef grunur er um að heimasíða með barnaklámi sé hýst á Íslandi þá er jafnframt hægt að senda tölvupóst til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans á netfangið tolvubrot@rls.is
Tengt efni:
|