Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fjölbýlishús   

Hvaða reglur gilda um tímatakmörk á hávaða í fjölbýlishúsum ?

Upplýsingar um þetta er t.d. í lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994, 74. gr., en þar er fjallað um að stjórn húsfélaga skuli semja reglur og leggja fyrir húsfund þar sem m.a. er lagt bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 07:00 að morgni og undanþágur frá því banni ef einhverjar eru skal fara með skv. 74. gr. laganna sem orðast svo: 

 

74. gr.

Stjórn húsfélags skal semja og leggja fyrir húsfund til samþykktar, sbr. 1. tölul. C-liðar 41. gr., reglur um hagnýtingu sameignar og séreignar að því marki sem lög þessi leyfa.

Skulu reglur þessar, húsreglur, hafa að geyma sem ítarlegust ákvæði um sambýlishætti, umgengni og afnot sameignar og skiptingu afnota ef því er að skipta, allt eftir því sem við á og eðlilegt og haganlegt þykir að reglufesta í viðkomandi húsi.

Í húsreglum fjölbýlishúsa skal m.a. fjalla um neðangreind atriði:
1. Umgengni um sameign og um afnot hennar og hagnýtingu.
 
2. Bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 7 að morgni og undanþágur frá því banni.
 
3. Skiptingu afnota sameiginlegs þvottahúss.
 
4. Hvernig þrifum sameignar og umhirðu lóðar skuli háttað og hverjar séu skyldur eigenda í því efni.
 
5. Reglur um hunda- og/eða kattahald sé það leyft, sbr. 13. tölul. A-liðar 41. gr.
 
6. Reglur um afnot sameiginlegra bílastæða.
 
7. Reglur um hagnýtingu séreigna að því marki sem unnt er.

 

Sjá að öðru leyti lög um fjöleignarhús á heimasíðu Alþingis með því að smella hér

 

Til baka
Breytt: 23. júlí 2002

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarkshraði með tjaldvagn eða kerru á bundnu slitlagi er 80 km/klst ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur