Nei, brot fyrnast ekki á skaskrá, en það gilda ákveðnar reglur um tímatakmörk á færslum upplýsinga á sakarvottorð, sjá nánar meðfylgjandi upplýsingar úr bæklingi dómsmálaráðuneytisins um þetta efni.
Eftirfarandi upplýsingar um sakavottorð er að finna í bæklingi sem útgefin var af dómsmálaráðuneytinu.
Almennt um sakavottorð
Sakavottorð eru gefin út af sakaskrá ríkisins. Ríkissaksóknari heldur sakaskrá fyrir landið allt. Niðurstöður í opinberum málum á hendur einstaklingi eða lögaðila eru færðar í sakaskrá þegar máli er lokið með:
• dómi eða viðurlagaákvörðun vegna brots á alm. hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni,
•dómi eða viðurlagaákvörðun vegna brots á öðrum lögum þegar ákveðiner fangelsisrefsing, ákvörðun refsingar er frestað eða ákveðin er réttinda- eða leyfissvipting eða, dæmd er sekt 50.000 kr. eða hærri,
•lögreglustjórasátt vegna brots á almennum hegningarlögum og lögum umávana- og fikniefni,
•lögreglustjórasátt eða sektargerð tollstjóra vegna brots á öðrum lögum þegar sekt er 50.000 kr. eða hærri eða brot hefur leitt til réttinda- eða leyfissviptingar,
•ákærufrestun.
Nánari upplýsingar um sakavottorð er að finna í reglugerð um sakaskrá ríkisins, nr. 569/1999.
Á skýringartöflu sést hve lengi í árum talið færa ber upplýsingar um mál, sem skráðar hafa verið í sakaskrá, inn á sakavottorð, annars vegar sakavottorð til einstaklinga og híns vegar sakavottorð til yfirvalda.
Sakavottorð til einstaklinga
Hver sem er getur fengið sakavottorð útgefið um sjálfan sig. Einstaklingar yngri en 18 ára geta þó aðeins fengið útgefið sakavottorð að fyrir liggi samþykki þess sem fer með forsjá viðkomandi.
Beiðni um útgáfu sakavottorðs skal beina til lögreglu og skal hún vera skrifleg og undirrituð. Persónuskilríkjum ber að framvísa við móttöku sakavottorðs.
Í sakavottorði til einstaklings skal einungis tilgreina upplýsingar um brot á almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Sakavottorð til yfirvalda
Auk þess að gefa út sakavottorð til eigin nota þá gefur ríkissaksóknari út sakavottorð til eftirtalinna yfirvalda:
•dómstóla
•dómsmálaráðuneytisins
•umboðsmanns Alþingis
•lögreglu
•fangelsismálastofnunar
•útlendingaeftirlitsins
Ríkissaksóknari getur ákveðið að aðrir opinberir aðilar en ofangreind yfirvöld fái afhent sakavottorð eða ákveðnar upplýsingar úr sakaskrá, enda hafi þeir lögvarða hagsmuni af að fá slíkar upplýsingar.
Upplýsingar úr
sakaskrá til einkaaðila
Ríkissaksóknari getur veitt einstaklingum, fyrirtækjum eða öðrum einkaaðilum ákveðnar upplýsingar úr sakaskrá í undantekningartilvikum.
|
|
Niðurstaða máls |
Sakavottorð til einstaklinga |
Sakavottorð til yfirvalda |
Tímamörk sem færslur upplýsinga á sakavottorð miðast við d |
|
Almenn- hegningarlög
|
Óskilyrt fangelsi |
5 |
10 |
Lok afplánunar fangelsis eða lok reynslutíma reynslulausnar 2) |
|
Ráðstöfun skv. 62.— 67. gr. |
5 |
10 |
Niðurfelling ráðstafana |
|
Skilyrt fangelsi |
5 |
10 |
Dagsetning niðurstöðu |
|
Sekt |
3 |
10 |
Dagsetning niðurstöðu |
|
Skilyrt ákærufrestun |
3 |
10 |
Dagsetning niðurstöðu |
|
Lög um ávana- og fíkniefni
|
Óskilyrt fangelsi |
5 |
10 |
Lok afplánunar fangelsis eða lok reynslutíma reynslulausnar 2) |
|
Ráðstöfun skv. 62.— 67. gr. |
5 |
10 |
Niðurfelling ráðstafana |
|
Skilyrt fangelsi |
5 |
10 |
Dagsetning niöurstöðu |
|
Sekt |
3 |
10 |
Dagsetning niöurstöðu |
|
Skilyrt ákærufrestun |
3 |
10 |
Dagsetning niöurstöðu |
|
Önnur sérrefsilög
|
Óskilyrt fangelsi |
|
10 |
Lok afplánunar fangelsis eða lok reynslutíma reynslulausnar |
|
Ráðstöfun skv. 62.— 67. gr. |
|
10 |
Niðurfelling ráöstafana |
|
Skilyrt fangelsi |
|
10 |
Dagsetning niðurstöðu |
|
Sekt 50.000 kr. og hærri |
|
10 |
Dagsetning niðurstöðu |
|
Réttindasvipting |
|
10 |
Lok réttindasviptingar |
|
Skýringar
|
1) Að liðnum tilteknum fjölda ára frá tímamarkinu eru upplýsingar sem skráðar hafa verið í sakaskrá um niðurstöðu mála ekki færðar á sakavottorð. 2) Alltaf er miðað viö lok afplánunar þegar um sakavottorð til einstaklings er að ræða. |
Embætti ríkissaksóknara er að Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, sími: 530 1600, fax: 530 1606
|