Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Ökuréttindi   

Hvað þarf að gera til að fá æfingaakstursleyfi á bifreið ?

Til þess að fá æfingaleyfi á bifreið þarf viðkomandi að vera orðinn fullra 16 ára.  Byrjunin er að fá tíma hjá ökukennara sem síðan aðstoðar með framhaldið og því best að byrja á því að snúa sér til viðurkennds ökukennara.  Í reglugerð um ökuskírteini, 28. til 30. gr., er fjallað um æfingaakstur:

Æfingaakstur.

28. gr.

Æfingaakstur má ekki fara fram fyrr en tólf mánuðum áður en nemandi hefur aldur til að fá útgefið það ökuskírteini sem óskað er eftir, sbr. ákvæði I. kafla.

Sá sem sviptur hefur verið ökurétti má ekki æfa sig í akstri fyrr en einum mánuði áður en sviptingartímabil rennur út.

Æfingaakstur má ekki fara fram á vegum þar sem umferð er mikil fyrr en nemandi hefur náð þeirri leikni í akstri að eigi stafi sérstök hætta af. Æfingaakstur skal fara fram á vegum við mismunandi umferðarþunga, bæði í þéttbýli og utan þess.

 

 

29. gr.

Við æfingaakstur á bifhjóli, þ. á m. léttu bifhjóli, má ökukennari kenna mest tveimur nemendum í senn. Ökukennarinn skal geta fylgst gaumgæfilega með akstri nemendanna. Ökukennarinn má og skal, ef kennt er fleiri en einum nemanda í senn, fylgjast með nemendunum úr ökutæki sem fylgir á eftir. Ökutækið skal þannig búið að ökukennarinn geti haft handfrjálst fjarskiptasamband við nemandann, og því skal stjórnað af ökukennaranum eða öðrum sem hefur gilt ökuskírteini. Við kennslu eins nemanda má ökukennarinn fylgjast með akstrinum úr baksæti bifhjólsins.

Ef æfingaakstur á bifhjóli fer fram á svæði þar sem ekki er önnur umferð og ökukennarinn getur haft stöðugt eftirlit með nemanda og veitt honum nauðsynlegar leiðbeiningar eiga ákvæði 1. mgr. ekki við.

Ökutæki sem notuð eru til ökukennslu skulu fullnægja skilyrðum í III. viðauka.

 

 

Æfingaakstur með leiðbeinanda.

30. gr.

Nemanda er heimilt að æfa akstur bifreiðar eða bifhjóls með leiðbeinanda í stað ökukennara, enda hafi nemandinn hlotið lágmarksþjálfun og leiðbeinandinn fengið til þess leyfi lögreglustjóra, svo sem nánar greinir í IV. viðauka, 3. tölulið.

 

Tengt efni:

 

Til baka
Breytt: 24. júlí 2002

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
kona var í fyrsta skipti skipuð aðstoðaryfirlögregluþjónn þann 7. júní 2000 ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur