30. apríl 2011
Viðvörun frá lögreglunni vegna fíkniefna
Lögreglan varar við fíkniefnum sem nú kunna að vera á markaði hérlendis. Um er að ræða blandað metamfetamín sem inniheldur svokallað PMMA og er mjög eitrað en lögreglan í Borgarnesi fann samskonar efni við leit í bíl á dögunum. Vitað er um dauðsföll...
Meira
|
|
 |
 |
 |
30. apríl 2011
Mannslát í Reykjavík
Kona um tvítugt fannst látin í íbúð í fjölbýlishúsi í Reykjavík um hádegisbil í dag. Þegar lögreglan kom á vettvang voru þar fyrir fjórir aðrir aðilar og voru þeir allir handteknir í þágu rannsóknarinnar. Rannsókn málsins er á frumstigi og...
Meira
|
|
 |
 |
 |
29. apríl 2011
Strætó ekið of hratt
Við hraðamælingar í íbúðahverfum á höfuðborgarsvæðinu í apríl hefur hátt brotahlutfall ökumanna vakið nokkra athygli en oftar ekki er það meira en 40%. Ljóst er að ökumenn þurfa að taka sig á en þeir sem í hlut eiga eru á öllum aldri og af báðum...
Meira
|
|
 |
 |
 |
29. apríl 2011
Frágangur á farmi
Því miður vill það stundum brenna við að frágangur á farmi er óviðunandi. Dæmi um það sést á meðfylgjandi mynd sem var tekin í Reykjavík í vikunni. Eins og sjá má voru hvorki styttur né skjólborði á annarri hlið vagnsins og því ekkert sem hindraði...
Meira
|
|
 |
 |
 |
28. apríl 2011
Hraðakstur í Háholti í Hafnarfirði
Brot 7 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 17 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 41%,...
Meira
|
|
 |
 |
 |
28. apríl 2011
Trampólín til vandræða
Leiðindaveður er nú á höfuðborgarsvæðinu og er fólk minnt á að festa lausamuni eða koma þeim í skjól. Þetta á ekki síst við um trampólín en nokkur slík hafa fokið úr görðum í umdæminu í...
Meira
|
|
 |
 |
 |
28. apríl 2011
Hraðakstur á Hringbraut í Hafnarfirði
Brot 43 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í suðurátt, gegnt Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2011
Á ofsahraða í Ártúnsbrekku
Sautján ára piltur var staðinn að hraðakstri í Ártúnsbrekku í gærkvöld en bíll hans mældist þar á 157 km hraða. Kauði á nú yfir höfði sér háa sekt og ökuleyfissviptingu og fær því ágætan tíma til að hugsa ráð sitt. Ekki virðist vera vanþörf á því...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2011
Borgaraleg handtaka
Innbrotsþjófur var handtekinn í Grafarvogi um miðjan dag í gær. Sá hafði brotið bílrúðu og hugðist stela verðmætum úr ökutækinu. Ökumaðurinn var hinsvegar skammt undan, sá þjófinn og handsamaði hann hið snarasta. Þjófurinn var enn í haldi hjá...
Meira
|
|
 |
 |
 |
27. apríl 2011
Kannabisræktun í Breiðholti
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti á skírdag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, en þær vógu vel á annan tug kílóa. Íbúðin var mannlaus...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2011
Hraðakstur í Norðurfelli í Reykjavík
Brot 49 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 91 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%,...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2011
Þjófar handteknir í Hafnarfirði
Karl á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri voru handtekin í tvígang fyrir þjófnað og innbrot í Hafnarfirði á laugardag. Fyrst voru þau handtekin snemma morguns eftir að hafa stolið GPS-tæki og fleiri verðmætum úr ólæstum bílum. Hinum stolnu munum...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2011
Fimmtán teknir fyrir ölvunarakstur
Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um páskana. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á skírdag, tveir á föstudaginn langa, fjórir á laugardag, einn á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2011
Innbrotsþjófur handtekinn í Garðabæ
Karl á þrítugsaldri var handtekinn eftir innbrot á heimili í Garðabæ í gærmorgun. Þar hafði hann stolið fartölvu og ýmsum fleiri munum. Þýfið fannst óskemmt skammt frá vettvangi og var hinum stolnu hlutum komið aftur í réttar...
Meira
|
|
 |
 |
 |
26. apríl 2011
Sex óku undir áhrifum fíkniefna
Um páskana voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudaginn langa og laugardag og einn á páskadag og annan í páskum.
Meira
|
|
 |
 |
 |
20. apríl 2011
Hávaði í heimahúsum
Nokkrar kvartanir bárust lögreglu vegna hávaða í heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu á þriðja og fjórða tímanum í nótt. Í nær öllum tilvikum var um að ræða of hátt stillta tónlist sem fór eðlilega fyrir brjóstið á nágrönnum. Í einu tilfelli var þó...
Meira
|
|
 |
 |
 |
20. apríl 2011
Þrír óku undir áhrifum fíkniefna
Lögreglan stöðvaði för þriggja ökumanna á höfuðborgarsvæðinu í gær en hinir sömu voru allir undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 30-50 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en annar þeirra var á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
20. apríl 2011
Hraðakstur á Álfaskeiði í Hafnarfirði
Brot 37 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, nærri Mávahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
19. apríl 2011
Falsaðir 5.000 kr. seðlar í umferð
Undanfarnar vikur hefur nokkuð borið á því að fölsuðum 5.000 kr. peningaseðlum hefur verið komið í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Í flestum tilvikum hefur ekki uppgötvast að um falsaða seðla sé að ræða fyrr en við uppgjör á sjóðvélum eða við innlegg í...
Meira
|
|
 |
 |
 |
19. apríl 2011
Hraðakstur á Fléttuvöllum í Hafnarfirði
Brot 8 ökumanna voru mynduð á Fléttuvöllum í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fléttuvelli í suðurátt, við Glitvelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
19. apríl 2011
Hraðakstur á Ásbraut í Hafnarfirði
Brot 16 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í suðurátt, við leikskólann Stekkjarás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
18. apríl 2011
Hraðakstur á Hraunbrún í Hafnarfirði
Brot 32 ökumanna voru mynduð á Hraunbrún í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í suðurátt, að Tunguvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða...
Meira
|
|
 |
 |
 |
15. apríl 2011
Lagt hald á fíkniefni og peninga
Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir í gær vegna sölu og dreifingar á fíkniefnum. Lögregla hafði fylgst með mönnunum, sem báðir eru góðkunningjar lögreglu, í nokkurn tíma en ekki vildi betur til en svo að þeir lentu í umferðaróhappi þegar...
Meira
|
|
 |
 |
 |
14. apríl 2011
Eftirlíking að skotvopni fannst við húsleit
Lögreglan fann eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ í gærdag. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn tvítugur voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en skotvopnið fannst á heimili annars þeirra. Þessir tveir karlmenn tengjast...
Meira
|
|
 |
 |
 |
14. apríl 2011
Hraðakstur í Dalsmára í Kópavogi
Brot 40 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lækjarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 63%, of...
Meira
|
|
 |
 |
 |
14. apríl 2011
Hraðakstur á Garðaflöt í Garðabæ
Brot 24 ökumanna voru mynduð á Garðaflöt í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðaflöt í vesturátt, við Smáraflöt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 40 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 60%, of...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2011
Hraðakstur á Arnarhrauni í Hafnarfirði
Brot 23 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, að Sléttahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2011
Hraðakstur á Hvannavöllum í Hafnarfirði
Brot 17 ökumanna voru mynduð á Hvannavöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvannavelli í norðurátt, að Kvistavöllum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2011
Kannabisræktun í Breiðholti
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í nótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 100 kannabisplöntur en á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem...
Meira
|
|
 |
 |
 |
13. apríl 2011
Tveir óku undir áhrifum fíkniefna
Tveir ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu í gær fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar var stöðvaður í Kópavogi en hinn í Háaleitishverfi en báðir höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri en í bíl þess...
Meira
|
|
 |
 |
 |
12. apríl 2011
Hraðakstur á Hjallabraut í Hafnarfirði
Brot 21 ökumanns var myndað á Hjallabraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í suðurátt, gegnt Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2011
Fíkniefnasali handtekinn í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði á föstudag. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, 20 grömm af amfetamíni, hefðu verið ætluð til sölu. Við húsleitina naut...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2011
Innbrot í bíla
Brotist var inn í sjö bíla í Reykjavík um helgina. Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum, töskum og geislaspilara en þjófarnir voru á ferðinni í Grafarvogi, Hlíðunum og vesturbænum. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2011
Þjófur í síbrotagæslu
Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 6. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu, aðallega vegna...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2011
Umferðareftirlit - 220 ökumenn stöðvaðir
Tvö hundruð og tuttugu ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar í borginni um helgina. Einn reyndist ölvaður og fjórum ökumönnum til viðbótar var gert að hætta akstri en þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2011
Sex teknir fyrir ölvunarakstur
Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-79 ára...
Meira
|
|
 |
 |
 |
11. apríl 2011
Fjórir óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru fjórir ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þrír voru teknir á laugardag og einn á sunnudag. Þetta voru þrír karlar á aldrinum 17-25 ára...
Meira
|
|
 |
 |
 |
9. apríl 2011
Fíkniefnamál
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í 8 ára fangelsi í Danmörku í síðasta mánuði. Maðurinn var handtekinn á landamærum Danmerkur og Þýskalands um miðjan nóvember en í bíl hans fundust tæplega 10 kg af amfetamíni. Lögreglan á...
Meira
|
|
 |
 |
 |
8. apríl 2011
Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík
Brot 15 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, að Reykjahlíð. Á þremur stundarfjórðungum, fyrir hádegi, fóru 694 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða...
Meira
|
|
 |
 |
 |
8. apríl 2011
Grunsamlegir menn
Undanfarið hafa lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu borist allnokkrar tilkynningar þess efnis að reynt sé að lokka börn upp í bíla. Í flestum tilfellum eiga þessi atvik sér stað í nágrenni grunnskóla. Unnið hefur verið úr öllum vísbendingum enda málin...
Meira
|
|
 |
 |
 |
8. apríl 2011
Hákarl haldlagður
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 250 kg af unnum hákarli við húsleit í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi fyrr í vikunni. Á sama stað var einnig lagt hald á fíkniefni og tvo peningaskápa. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en hún er...
Meira
|
|
 |
 |
 |
7. apríl 2011
Kynferðisbrot - áframhaldandi gæsluvarðhald
Tveir karlar, annar um fimmtugt en hinn á fertugsaldri, voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir...
Meira
|
|
 |
 |
 |
7. apríl 2011
Hraðakstur í Grænatúni í Kópavogi
Brot 39 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, að Bæjartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of...
Meira
|
|
 |
 |
 |
6. apríl 2011
Tilmæli til ökumanna í vesturbæ Reykjavíkur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggja ólöglega mega búast við...
Meira
|
|
 |
 |
 |
6. apríl 2011
Hraðakstur á Kársnesbraut í Kópavogi
Brot 67 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, gegnt Marbakkabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 256 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2011
Fíkniefni fundust við húsleit
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í Breiðholti á föstudag. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsa muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Tveir karlar og ein kona voru...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2011
Þrettán líkamsárásir um helgina
Þrettán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Átta þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags. Líkamsárásirnar voru flestar minniháttar og mestmegnis voru þetta pústrar. Í tveimur tilvikum var...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2011
Sjö teknir fyrir ölvunarakstur
Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18-...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2011
Fíkniefnasalar handteknir
Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í austurborginni í gær eftir að lögreglan stöðvaði þar ökutæki. Hjá þeim fundust fíkniefni en mennirnir voru einnig með nokkuð af peningum í fórum sínum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna...
Meira
|
|
 |
 |
 |
4. apríl 2011
Sex óku undir áhrifum fíkniefna
Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þrír voru teknir á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm...
Meira
|
|
 |
 |
 |
1. apríl 2011
Umferðareftirlit - 250 ökumenn stöðvaðir
Tvö hundruð og fimmtíu ökumenn voru stöðvaðir í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar í miðborginni seint í gærkvöld og nótt. Sex þeirra var gert að hætta akstri en þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum.
Meira
|
|
 |