Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Höfuðborgarsvæðið - 07  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Hafðu samband  
 Svæði/Hverfi  
 Ársskýrslur  
 Aðrar skýrslur  
 Leyfi - eyðublöð  
 Lögreglusamþykktir  
 Óskilamunir  
 Stefnumörkun  
 Tenglar - Sveitarfélögin  
 English  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Höfuðborgarsvæðið - 07 - Fréttir   
28. september 2007
Fíkniefni fundust við húsleit
Karl á þrítugsaldri var handtekinn í Kópavogi síðdegis en við húsleit hjá honum fannst 1,7 kíló af ætluðu maríjúana. Á sama stað fundust einnig 80 kannabisplöntur. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum...
Meira
28. september 2007
Hraðakstur á Reykjavíkurvegi
Fjörutíu og átta ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöld en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vestur á móts við Glitvang í norðurbænum. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 50 km...
Meira
28. september 2007
Laug til nafns
Karl á fertugsaldri var stöðvaður við akstur á Reykjanesbraut í Garðabæ í morgun. Hann var skilríkjalaus en gaf lögreglu góðfúslega upp allar helstu upplýsingar, þ.e. nafn, kennitölu og heimilisfang. Ekki þótti ástæða til að efast um frásögn...
Meira
28. september 2007
Þjófar gripnir glóðvolgir
Þrír þjófar voru gripnir glóðvolgir við iðju sína í jafnmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Síðdegis var tvítug kona staðin að hnupli í miðborg Reykjavíkur en hún tók snyrtivörur úr umbúðum, stakk þeim í vasann og hugðist ganga út án þess...
Meira
28. september 2007
Áfengisframleiðsla í Hafnarfirði
Rannsóknarlögreglumenn á svæðisstöðinni í Hafnarfirði framkvæmdu húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í suðurbæ Hafnarfjarðar í gær vegna gruns um að þar færi fram sala og framleiðsla á áfengi. Við leitina fundust tæki og tól til framleiðslunnar svo og 24...
Meira
27. september 2007
Áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. október
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu úrskurðað karl á þrítugsaldri í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. október vegna rannsóknar á aðild hans að fíkniefnamálinu á Fáskrúðsfirði. Sakborningurinn hefur kært...
Meira
27. september 2007
Dregur úr hraða
Dregið hefur úr hraða ökutækja sem fara um gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar, samkvæmt síðustu vöktun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Brot 90 ökumanna voru mynduð á þessum stað frá mánudegi til miðvikudags nú í vikunni, eða í tvo sólarhringa.
Meira
27. september 2007
Innbrotsþjófur handtekinn í Hafnarfirði
Innbrot í vinnuskúr í Hafnarfirði var tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Rúmlega klukkustund eftir tilkynninguna var karl á miðjum aldri handtekinn vegna málsins. Sá maldaði í móinn í fyrstu en maðurinn gat hins vegar engar...
Meira
27. september 2007
Veggjakrotari staðinn að verki
Tæplega hálfþrítugur karl var staðinn að veggjakroti í Kringlunni í gærkvöld. Hann viðurkenndi brot sitt en að öðru leyti var fátt um svör þegar hann var spurður um þetta athæfi. Maðurinn hefur einu sinni áður komið við sögu hjá lögreglu vegna...
Meira
26. september 2007
Fíkniefnamál í Reykjavík - einn áfram í gæsluvarðhaldi
Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til mánudagsins 1. október nk. en hann er grunaður um innflutning á kókaíni í fljótandi formi. Karl á fertugsaldri var sömuleiðis handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en sá...
Meira
26. september 2007
Hraunbergsmálið - ekki ekið á manninn
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í svokölluðu Hraunbergsmáli hefur leitt í ljós að ekki var ekið á manninn í umræddu máli. Grunur beindist strax að ákveðnum bíl og var ökumaðurinn yfirheyrður. Við rannsókn málsins kom ekkert það fram sem...
Meira
26. september 2007
Hraðakstur á Hringbraut
Brot 48 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt ofan við Flensborgarskóla en þar er 30 km hámarkshraði. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók...
Meira
25. september 2007
Kattarslagur í Hafnarfirði
Eins og flestir vita sinnir lögreglan ýmsum verkefnum, bæði stórum sem smáum, og laganna verðir þurfa jafnan að vera við öllu búnir. Í síðustu viku hringdi karl á þrítugsaldri í lögreglu um miðja nótt og óskaði eftir skjótri aðstoð. Maðurinn, sem...
Meira
25. september 2007
Foreldrar og veggjakrot
Nokkuð hefur borið á veggjakroti á höfuðborgarsvæðinu en reynt er að stemma stigu við því með ýmsu móti. Nauðsynlegt er að allir leggist á eitt, ekki síst foreldrar en þeir hafa mikilvægu hlutverki að gegna í þessari baráttu. Ætla mætti að öllum...
Meira
23. september 2007
Fíkniefnamálið á Fáskrúðsfirði - rannsókn miðar vel
Rannsókninni á fíkniefnamálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði fyrir helgi miðar vel en yfirheyrslur yfir sakborningunum halda áfram. Í Noregi var einn aðili handtekinn vegna málsins en sá er laus úr haldi. Í Færeyjum voru tveir aðilar handteknir vegna...
Meira
22. september 2007
Fíkniefnamál í Reykjavík - tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald
Tveir karlar, annar á fertugsaldri og hinn um fertugt, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 26. september. Þeir eru grunaðir um innflutning á ætluðum fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Smellið hér til að lesa nánar um málið en um...
Meira
22. september 2007
Fíkniefnamál í Reykjavík - kókaín í fljótandi formi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á gæsluvarðhald yfir tveimur körlum sem eru grunaðir um innflutning á ætluðum fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Talið er að um sé að ræða 1800 ml af kókaíni í fljótandi formi. Mennirnir, annar á fertugsaldri...
Meira
21. september 2007
Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald - 60 kíló af fíkniefnum fundust
Í kjölfar handtöku þriggja íslenskra manna í og við skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn í gærmorgun vegna gruns um stórfeldan innflutning fíkniefna voru tveir aðilar til viðbótar handteknir á höfuðborgarsvæðinu, einn aðili í Noregi , tveir í Danmörku og...
Meira
20. september 2007
Fréttatilkynning frá ríkislögreglustjóra og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Átta einstaklingar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á fíkniefnamálinu á Fáskrúðsfirði. Fimm voru handteknir hérlendis, tveir í Danmörku og einn í Noregi. Rannsóknin er enn í fullum gangi hér á landi og í framangreindum löndum.
Meira
20. september 2007
Umfangsmikil fíkniefnarannsókn
Umfangsmikil rannsókn hefur verið í gangi hjá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði á hugsanlegum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum hingað til lands. Rannsókn málsins hefur teygt anga sína til margra Evrópulanda...
Meira
19. september 2007
Innbrot og þjófnaðir
Þrjú innbrot í bíla í Reykjavík voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Úr einum var stolið radarvara, úr öðrum var tekið veski og rafgeymir hvarf úr þeim þriðja. Þá var skráningarnúmerum stolið af fjórða bílnum. Í austurborginni...
Meira
19. september 2007
Ekið á gangandi vegfarendur
Ekið var á tæplega tvítuga stúlku á Hringbraut í gærmorgun. Stúlkan var að koma úr strætisvagni þegar óhappið varð en hún fór aftur fyrir vagninn, út á götuna og í veg fyrir umferð. Svo virðist sem stúlkan hafi ekki gætt nógu vel að sér því hún...
Meira
18. september 2007
Slys á fólki
Piltur á grunnskólaaldri handleggsbrotnaði þegar hann féll af þaki fyrirtækis í austurborginni í gær. Talið er að pilturinn hafi verið að príla með fyrrgreindum afleiðingum. Í Kópavogi var annar strákur að ganga ofan á girðingu og missti jafnvægið.
Meira
18. september 2007
70 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu
Sjötíu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en sex þeirra má rekja til ölvunaraksturs. Flest óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Í tólf tilfellum var um...
Meira
17. september 2007
Tólf teknir fyrir ölvunarakstur
Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir á föstudag, fjórir á laugardag og fimm á sunnudag. Sex voru teknir í Reykjavík, fimm í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Þetta voru allt karlar á...
Meira
17. september 2007
46 brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar
Fjörutíu og sex einstaklingar brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar um helgina. Sextán gerðust sekir um þetta athæfi aðfaranótt laugardags og þrjátíu aðfaranótt sunnudags. Þetta voru 43 karlar og 3 konur. Karlarnir eru langflestir á...
Meira
14. september 2007
Ölvaðir ökumenn
Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Þetta voru þrír karlar, einn um tvítugt og tveir á sextugsaldri, og ein kona á fertugsaldri. Þrír ökumenn voru teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Það voru...
Meira
14. september 2007
Fjórir handteknir í tveimur fíkniefnamálum
Karl á þrítugsaldri og tvær konur um tvítugt voru handtekin í íbúð í vesturbænum í Reykjavík síðdegis í gær. Á staðnum fundust ætluð fíkniefni og nokkrir hnífar. Í Grafarvogi var karl á þrítugsaldri handtekinn um miðjan dag en í bíl hans fundust...
Meira
14. september 2007
Vinnupallur fauk á tvo bíla
Vinnupallur féll á tvo bíla í miðborginni eftir hádegi í gær. Rúða í öðrum bílnum brotnaði en hinn dældaðist nokkuð. Allhvasst var í borginni þegar óhappið átti sér stað og er talið næsta víst að vinnupallurinn, sem var úr timbri, hafi fokið með...
Meira
13. september 2007
Ölvaður ökumaður með barn sitt í bílnum
Kona á fertugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur við gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar síðdegis í gær. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á grunnskólaaldri. Þá var rúmlega þrítugur karl tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá...
Meira
13. september 2007
322 ökumenn staðnir að hraðakstri á Bústaðavegi
322 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að aka yfir afskiptahraða á Bústaðavegi í gær og fyrradag. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél en hinir brotlegu óku að jafnaði á liðlega 74 km hraða. Fjörutíu og einn ökumaður var mældur á yfir 80...
Meira
13. september 2007
Fíkniefni fundust í Árbæ
Kannabisplanta fannst við húsleit í fjölbýlishúsi í Árbæ í gær. Húsráðandi, sem er karl á miðjum aldri, var handtekinn en í íbúð hans fannst einnig lítilræði af ætluðu maríjúana. Á sama stað fannst sömuleiðis riffill sem hafði verði stolið á...
Meira
12. september 2007
Aftur í ökupróf
Allmargir voru staðnir að hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu í gær en í þeim hópi var 17 ára stúlka sem var stöðvuð á mótum Reykjanesbrautar og Sæbrautar. Bíll hennar mældist á 118 km hraða og fyrir vikið á stúlkan ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.
Meira
12. september 2007
Innbrotsþjófar handteknir í Ármúla
Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir í verslun í Ármúla í gærkvöld. Mennirnir brutu upp útidyrahurð og höfðu stungið á sig skiptimynt úr búðarkassa þegar lögreglan kom á vettvang. Þjófarnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu en annar...
Meira
12. september 2007
Hraðakstur á Digranesvegi
Brot 184 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt á móts við Menntaskólann í Kópavogi en þar er 30 km hámarkshraði. Á tveimur klukkustundum, síðdegis, fóru 288 ökutæki þessa akstursleið og því ók...
Meira
11. september 2007
Eftirvagnar í ólagi
Síðastliðinn föstudag og laugardag var haldið úti sérstöku eftirliti með eftirvögnum. Fjölmargir ökumenn voru stöðvaðir af þeim sökum en tilgangurinn var fyrst og fremst að kanna ástand fyrrnefndra vagna. Ökumenn tóku afskiptunum almennt vel en mjög...
Meira
10. september 2007
Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur
Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn í nótt. Níu voru teknir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-48 ára og tvær...
Meira
10. september 2007
53 brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar
Fimmtíu og þrír einstaklingar brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar um helgina. Tuttugu og þrír gerðust sekir um þetta athæfi aðfaranótt laugardags og þrjátíu aðfaranótt sunnudags. Þetta var 51 karl og 2 konur, 17 og 18 ára. Karlarnir eru...
Meira
10. september 2007
Fíkniefni og skotvopn fundust í húsi í miðborginni
Tvær konur á fertugsaldri og karl á fimmtugsaldri voru handtekin í húsi í miðborginni um miðjan dag í gær en þau voru gripin glóðvolg við neyslu fíkniefna. Í húsinu fundust fíkniefni sem talið er að séu amfetamín, LSD og hass. Á sama stað fundust...
Meira
7. september 2007
Árekstur í Vatnagörðum
Allharður árekstur varð í Vatnagörðum um ellefuleytið í morgun en þar rákust saman tveir bílar. Ökumennirnir voru einir í bílunum og voru þeir báðir fluttir á slysadeild en meiðsli þeirra eru þó ekki talin alvarleg. Bílarnir skemmdust töluvert og...
Meira
7. september 2007
Útsmognir þjófar
Sautján ára stúlka var staðin að þjófnaði í Kringlunni í gær. Hún hafði klætt sig í jogging-buxur í ónefndri verslun og síðan í sínar eigin buxur utan yfir. Stúlkan hafði jafnframt fjarlægt þjófavarnarmerkið af jogging-buxunum og taldi þar með að...
Meira
7. september 2007
Innbrot í bíla
Fimm innbrot í bíla voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Þrír bílanna voru staðsettir í Breiðholti. Úr einum var stolið GPS-staðsetningartæki, geislaspilara var saknað úr öðrum og skilríki og bækur hurfu úr þeim þriðja.
Meira
6. september 2007
20 árekstrar á höfuðborgarsvæðinu í gær
Tuttugu árekstrar voru tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þrír þeirra urðu á milli hálfátta og níu í gærmorgun og sjö á milli hálffjögur og hálfsex síðdegis. Umferð á helstu stofnbrautum gekk annars þokkalega á álagstímum þótt...
Meira
6. september 2007
Fíkniefni fundust í Hafnarfirði
Um 30 gr af ætluðu amfetamíni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gær. Húsráðanda, sem er þrítugur, var sleppt að lokinni skýrslutöku. Hann hefur áður komið við sögu fíkniefnamála. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum úrskurði...
Meira
4. september 2007
Réttindalausir ökumenn í umferðinni
Sex réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í Hafnarfirði tók lögreglan karl á sextugsaldri fyrir þessar sakir en sá sagðist hafa gleymt ökuskírteininu heima. Ekki fannst ökuskírteinið en við athugun lögreglu reyndist...
Meira
4. september 2007
Hraðakstur við Ingunnarskóla í Grafarholti
Brot 39 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Grafarholti í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, þ.e. framhjá Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna of...
Meira
4. september 2007
Sautján teknir fyrir ölvunarakstur
Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudag, fjórir á laugardag og tólf á sunnudag. Ellefu voru teknir í Reykjavík, fimm í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Þetta voru sextán karlar á...
Meira
3. september 2007
81 umferðaróhapp á höfuðborgarsvæðinu
Áttatíu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en tvö þeirra má rekja til ölvunaraksturs. Flest óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Í þeim hópi voru þrír...
Meira
3. september 2007
Hraðakstur í Hvalfjarðargöngum
Brot 350 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum um helgina. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 84 km/klst en leyfður hámarkshraði í göngunum er 70. Tuttugu og átta ökumenn óku á yfir 90 km hraða og tveir á yfir 100 en sá sem hraðast ók var á...
Meira
3. september 2007
Tíu líkamsárásir um helgina
Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en helmingur þeirra átti sér stað í miðborginni. Í biðröð við skemmtistað fékk piltur um tvítugt högg á andlitið og skarst illa en árásarmannsins er enn leitað. Inni á...
Meira

2013
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2012
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2011
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2010
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2009
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2008
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

2007
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Janúar

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
um 80% þeirra sem eru sviptir eru ökuréttindum vegna umferðarpunkta eru karlmenn, yngri en 20 ára ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur