Ýmis ákvæði um börn og ungmenni og hagsmuni þeirra
Börn Þegar fjallað er um börn í lögum er átt við einstaklinga yngri en 18 ára. Við 18 ára aldur verða börn lögráða. Lögráða maður er sjálfráða og fjárráða, þ.e. ræður einn fé sínu og öðrum persónulegum högum nema lög mæli á annan veg.
Lögreglu ber að tilkynna öll afskipti af börnum til barnaverndaryfirvalda Samkvæmt barnaverndarlögum ber lögreglunni að tilkynna til barnaverndarnefndar verði hún þess vör að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að barn stofni heilsu sinni eða þroska í í alvarlega hættu. Þá skal lögreglan einnig tilkynna barnaverndarnefnd þegar hún fær til meðferðar mál þar sem grunur leikur á að refsiverður verknaður hafi verið framinn annaðhvort af barni eða gegn því.
Fyrirmæli um afskipti lögreglu af börnum
Í lögreglulögum segir að lögreglunni beri að hafa afskipti af börnum yngri en 16 ára, sem eru á stöðum þar sem heilsu þeirra eða velferð er alvarleg hætta búin og koma þeim í hendur forsjármanna eða barnaverndaryfirvalda ef nauðsyn þykir.
Útivistartími Fjallað er um útivistartíma í barnaverndarlögunum. Þar kemur fram að börn, 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir. Aldursmörk miðast hér við fæðingarár en ekki fæðingardag.
Þátttaka barna í sýningum Samkvæmt barnaverndarlögum er þeim sem skipuleggja eða bera ábyrgð á fyrirsætu- og fegurðarkeppni, og annarri keppni af því tagi þar sem þátttakendur eru yngri en 18 ára, skylt að tilkynna um keppnina til Barnaverndarstofu. Í sömu lögum segir að börnum yngri en 18 ára sé óheimilt að taka þátt í nektarsýningum eða öðrum sýningum af kynferðislegum toga.
Aldurstakmark er 18 ár að söfnunarkössum
Aðgangur að söfnunarkössum (spilakössum) er takmarkaður við einstaklinga sem hafa náð 18 ára aldri og eiga yngri þátttakendur ekki tilkall til vinnings úr kössunum skv. reglugerð um söfnunarkassa.
14 ára aldurstakmark að leiktækjastöðum Samkvæmt lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar er börnum yngri en 14 ára ekki heimill aðgangur að leiktækjastöðum, nema í fylgd með forráðamönnum. Miða skal aldur við fæðingarár.
Vínveitingastaðir Samkvæmt 18. gr. áfengislaga er óheimilt að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára.
Í sömu grein kemur fram að börnum yngri en 18 ára sé óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga. eftir kl. 20:00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með foreldrum sínum eða maka. Dyraverðir, eftirlitsmenn og framreiðslumenn skulu láta ungmenni er koma á slíka staði eða dveljast þar eftir kl. 20:00 að kvöldi án samfylgdar foreldra sinna eða maka sanna aldur sinn með því að sýna skilríki með mynd eða á annan fullnægjandi hátt, enda sé ástæða til að ætla að hlutaðeigandi hafi ekki náð 18 ára aldri.
 Sakhæfi Sakhæfi er hæfi manns að lögum til að bera annars vegar skaðabótaábyrgð vegna réttarbrots og hins vega refsiábyrgð vegna afbrota og lýtur bæði að aldri manns og andlegu ástandi hans. Samkvæmt almennum hegningarlögum öðlast barn sakhæfi við 15 ára aldur. Því er hægt að refsa barni fyrir afbrot sem framin eru eftir að þeim aldrei er náð.
Tengt efni:
|