Auglýsing nr. 16/2012
Laust er til umsóknar starf yfirlögregluþjóns hjá embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum. Yfirlögregluþjónn annast daglega stjórn lögregluliðs í umboði lögreglustjóra og tekur þátt í áætlanagerð og skipulagningu löggæslu og hefur eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé framfylgt og að fjárhagslegur rekstur lögregluliðs sé innan fjárheimilda. Yfirlögregluþjónn hefur eftirlit með því að vinna lögreglumanna uppfylli að öllu leyti kröfur um fagleg vinnubrögð. Skilyrði er að umsækjendur hafi víðtæka reynslu af stjórn og rannsókn mála og og geti aðstoðað lögreglustjóra við saksókn einstakra mála.
Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar, nr. 1051/2006, skulu umsækjendur um þessa stöðu hafa starfað sem lögreglumenn í að minnsta kosti 5 ár frá því að þeir luku prófi frá Lögregluskóla ríkisins.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2012 og skal umsóknum skilað til lögreglustjórans á Vestfjörðum, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði, á netfangið: ulfar@syslumenn.is
Önundur Jónsson, yfirlögregluþjónn veitir upplýsingar um starfið í síma 450 3737.
Innanríkisráðherra skipar í embættið til 5 ára frá og með 1. nóvember 2012.
Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Umsóknir, sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur, verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.
Reykjavík, 18. maí 2012,
innanríkisráðuneytið. |