Auglýsing nr. 4/2008
Laus eru til umsóknar sex (6) störf lögreglumanna við rannsóknardeildir embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða:
· Þrjár (3) stöður rannsóknarlögreglumanna í deild R-1, fjármunabrotadeild, þar sem aðal viðfangsefni eru rannsóknir vegna innbrota og þjófnaða. Sett verður í stöðurnar til eins árs frá 15. mars n.k.
· Tvær (2) stöður rannsóknarlögreglumanna í deild R-1, fjármunabrotadeild, þar sem rannsóknir beinast aðallega að fjársvika- og skjalabrotum. Önnur staðan er tímabundin frá 15. mars n.k. til eins árs en í hina verður skipað frá sama tíma.
· Ein (1) staða í deild R-4, kynferðisbrotadeild. Sett verður í stöðuna til eins árs frá 15. mars n.k.
Samkvæmt 3. mgr. 14. gr. reglugerðar um starfsstig innan lögreglunnar, nr. 1051/2006, skulu umsækjendur um þessar stöður hafa starfað sem lögreglumenn í að minnsta kosti 2 ár frá því að þeir luku prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Sá sem skipaður er til að gegn þessum störfum skal sækja námskeið í Lögregluskóla ríkisins, þegar slíkt námskeið er í boði, sem sniðið er að viðkomandi starfi, hafi viðkomandi ekki sótt slíkt námskeið áður.
Nánari upplýsingar um allar stöðurnar veitir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn í síma 444-1000. Einnig veita upplýsingar aðstoðaryfirlögregluþjónarnir Ómar Smári Ármannsson, um stöðurnar í fjármunabrotadeild, og Sigurbjörn Víðir Eggertsson um stöðuna í kynferðisbrotadeild.
Umsóknum skal skilað til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, Hverfisgötu 113-115, 150 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2008.
Athygli er vakin á því, að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Ráðningakjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100%. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun eða setningu hefur verið tekin.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is, undir liðnum “eyðublöð.“
Reykjavík, 31. janúar 2008
Ríkislögreglustjórinn |