Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
 Innbrot og þjófnaðir  
 Ofbeldi  
 Fíkniefni og aðrir vímugjafar  
 Netið  
 Kynferðisbrot  
 Ýmis ákvæði laga um börn  
 Fræðsluefni  
 Greinar  
   Mánaðargrein  
 Vefir um forvarnir  
 Ýmislegt  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Mánaðargrein   
Í desember er tíminn aðalumræðuefnið manna á milli. Dagarnir fyllast af allskyns verkefnum, taka skápana, baka sortirnar, fægja silfrið, djúphreinsa teppin, borða hlaðborðin, hlusta á tónleika, velja gjafirnar o.s.frv. Það er endalaust hægt að finna sér eitthvað að gera. Í desember þarf að vera tími til alls.
En gleðin yfir verkefnunum, tilhlökkunin þegar allt verður komið í stand og flibbahnappar fundnir verður lítil ef við hlúum ekki að hvort öðru og gefum ekki þeim sem okkur eru kærastir af okkar tíma.

Börn og unglingar þurfa ekki síst á tíma, stuðningi og aðhaldi foreldra að halda í desember. Áreitið er mikið og þau e.t.v. með meiri fjárráð vegna tímabundinnar vinnu. Annir foreldra eru líka miklar og því vill henda að samvera fjölskyldunnar mæti afgangi. Samvera barna og foreldra er því afar mikilvæg og á aðventunni gefast mörg tækifæri til slíkra stunda.þar sem fjölskyldan setur sjálfa sig í öndvegi, styrkir böndin, nýtur samverunnar, og býr til góðar minningar saman.

Umhyggja og hlýja frá fjölskyldum er grundvöllur velferðar barna og dregur mjög úr líkum á því að unglingar velji að fikta við að reykja, nota áfengi eða önnur vímuefni. Ekki þarf að kosta miklu til eða að útbúa mikið prógramm. Samverustundir fjölskyldunnar einar og sér eru ómetanlegt veganesti fyrir lífið.

Undanfarin ár hafa skilaboð til fjölskyldna um að verja meiri tíma saman verið áberandi, einkum í kringum atburði þegar líklegt er að unglingar neyti áfengis eða annarra vímuefna. Foreldrar hafa tekið þessum skilaboðum vel en líka unglingar sem virðast vilja verja meiri tíma með sínum nánustu. Nýjustu kannanir á reykingum og neyslu vímuefna meðal 10. bekkinga sýna líka að mjög hefur dregið úr slíku í þeim aldurshópi og að ólíklegra er að unglingar leiðist út í slíka neyslu ef foreldrar fylgjast með þeim og taka virkan þátt í lífi þeirra.

Njótum aðventunnar sem tíma fyrir fjölskylduna til að undirbúa saman komu jólanna og njóta gleði og eftirvæntingar þannig að þegar klukkurnar hringja inn jólin hafi allir lagt sitt af mörkunum. Þá verður tími til alls og fjölskyldan í stakk búin til að njóta tímans.

SAMAN – hópurinn óskar öllum fjölskyldum ánægjulegrar aðventu og gleðilegra jóla og ármóta.                                       

 F. hönd SAMAN hópsins
Hildur Björg Hafstein
Verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð


Senda grein

Verum saman um verslunarmannahelgina

Flest eigum við góðar minningar frá verslunarmannahelgum: Útihátíð eða útilega með vinum, uppáhaldshljómsveitirnar að spila og margt fleira skemmtilegt að gerast. En því miður eiga sumir mjög slæmar – eða jafnvel engar – minningar frá samkomum verslunarmannahelgarinnar. Í nær öllum tilfellum er þar um ungt fólk að ræða og að þar hafa vímuefni komið við sögu.

Ekki eftirlitslaus á útihátíð

SAMAN-hópurinn, samstarfshópur um forvarnir, hefur á undanförnum árum beint kröftum sínum að því að hvetja til jákvæðra samskipta fjölskyldunnar og vekja athygli foreldra á að þeir beri ábyrgð á börnum sínum allt til 18 ára aldurs. Skilaboðin eru alltaf skýr og jákvæð og meginstef þeirra er: ,,Fjölskyldan saman".

Núna er verslunarmannahelgin á næsta leyti, en samkomur henni tengdar hafa því miður átt þátt í að ungmenni hafa leiðst út í vímuefnanotkun, með þeim skelfilegu afleiðingum sem henni fylgir. SAMAN-hópurinn vill því beina því til allra aðstandenda unglinga 18 ára og yngri að leyfa ekki eftirlitslausa ferð á útihátíð. Ennfremur að fullorðnir kaupi ekki eða bjóði unglingum áfengi.

Fjölskyldan er besta forvörnin

Reynslan og rannsóknir hafa sýnt að þeim börnum farnast best sem verja sem mestum tíma með fjölskyldu sinni. (Sjá www.vimuvarnir.is). Þau eru mun ólíklegri en önnur börn til að neyta vímuefna og tengsl þeirra við fjölskyldu sína og aðra eru yfirleitt mjög góð og jákvæð. Gott framboð er af útihátíðum um þessa helgi þar sem allir aldurshópar geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Margt ungt fólk langar til að fara á úthátíð en þau eru smeyk við það vegna þeirra slæmu atburða sem orðið hafa a mörgum þessara útihátíða. En þegar fjölskyldan fer saman getur unga fólkið tekið þátt í þeirri skemmtun sem því býðst og jafnframt fundið fyrir þeirri öryggiskennd sem því fylgir að vita af fjölskyldunni á sama svæði. Fullorðna fólkið veitir einnig ákveðið aðhald sem stuðlar að því að mótshaldið fari fram á þann hátt sem bæði mótshaldarar og þátttakendur vonast eftir. Skilaboðin eru: "Verum með börnunum okkar um verslunarmannahelgina".


Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarkshraði með tjaldvagn eða kerru á bundnu slitlagi er 80 km/klst ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur