Sl. helgi var maður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einnig var framkvæmd leit í bifreið hans en við hana fundust tæplega tvö grömm af hassi sem hann sagði við yfirheyrslu að væru ætluð til eigin neyslu. Prófanir lögreglu benda til þess að maðurinn hafi verið undir áhrifum kannabis og kókaíns er hann var við akstur bifreiðarinnar. Blóðsýni til frekari rannsóknar voru tekin úr manninum.
Annar ökumaður var svo einnig stöðvaður um helgina grunaður um ölvun við akstur.
12 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var mældur á 127 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90. Ökuréttindi hans voru einnig útrunnin. Verður honum boðið að ljúka málinu með greiðslu 50.000 kr sektar í ríkissjóð.
6 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Öll minniháttar og engin meiðsl á fólki
8 mál voru þingfest fyrir Hérðasdómi Vesturlands í morgun m.a var ákært vegna Innbrota, líkamsárásar, aksturs undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðs ölvunaraksturs |