Verkefni lögreglunnar voru liðlega 100 í vikunni og þar af 47 úr umferðinni. 14 kærðir fyrir að aka of hratt og ók sá sem hraðast fór með 130 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90. Fjórir umráðamenn vörubifreiða voru kærðir fyrir að leggja bílum sínum í íbúðahverfum en það er skv lögreglusamþykkt fyrir Akraneskaupstað, bannað. 10 eiga von á sekt vegna þess að þeir notuðu ekki öryggisbelti.
5 voru kærðir fyrir að tala í farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað. Lögregluliðin á suðvesturhorninu hafa staði sameiginlega að átaki sem miðar að því að koma í veg fyrir þessi brot og þá hættu sem þeim fylgir.
Sumum virðist ganga verr en öðrum að skilja hlutina. Ökumaður var var nýlega dæmdur til 30 daga fangelsisvistar og til greiðslu tæpl 50.000 málskostnaðar vegna réttindaleysis við akstur. Maður þessi hefur ítrekað verið tekinn fyrir ölvunarakstur og akstur sviptur ökuréttindum. Áður hafði maðurinn fengið 60 daga fangelsisdóm vegna ítrekaðra brota af sama tagi. Hann hefur því samanlagt fengið 90 daga fangelsisdóm vegna þessara brota.
Götusópur og rúta rákust saman er þau mættust á þjóðveginum. Hliðarspeglar bílanna rákust saman með þeim afleiðingum að spegill rútunnar slóst í hliðarrúðu sem brotnaði. Glerbrotum ringdi yfir ökumann rútunnar og þurfti hann að leita læknishjálpar vegna glerbrota í auga.
Brotist var inn í nýbyggingu við Tindaflöt og þaðan stolið verkfærum. Um var að ræða hersluvél og slípirokk af De Walt gerð og eru bæði verkfærin merkt fyrirtækinu Raftogi. Málið er í rannsókn.
Brotist var inn í íbúðarhúsnæði við Esjuvelli. Húsráðandi kom að innbrotsþjófunum sem höfðu sig á brott. Tveir menn voru handteknir vegna málsins og viðurkenndu innbrot við yfirheyrslur.
|