Ungur maður var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Hann kom á lögreglustöðina eftir að hafa ekið nokkrum sinnum á bifreið við heimahús. Virðist sem hann hafi verið að fá útrás fyrir reiði sína en honum hafði skömmu áður verið vísað út af skemmtistað. Hann fékk að gista fangageymslu og var yfirheyrður að morgni.
Tvær minniháttar líkamsárásir voru kærðar til lögreglu, Í báðum tilfellum hafði komið til riskinga á skemmtistöðum.
Brotist var inn í fjórar bifreiðar í vikunni. Í þremur tilfellanna var stolið framhlið af geislaspilara.
Í umferðinni bar það helst til tíðinda að ökumaður var kærður eftir að hafa verið mældur á 157 km/klst hraða á Vesturlandsvegi þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. |