Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Lausar stöður  
 Yfirstjórn  
 Almannavarnadeild  
 Um embættið  
 Fyrirspurnir  
 Schengen  
 Ársskýrslur RLS  
 Tölfræði / rannsóknir  
 Kynningarrit RLS  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Fréttir   
16.1.2008

Varað við nýrri tegund fjársvikabréfa

Embætti ríkislögreglustjóra varar við nýrri tegund fjársvikabréfa, svokallaðra Nígeríubréfa, sem berast í tölvupósti. Í bréfi þessu, sem borist hefur nokkrum aðilum hér á landi, kveðst sendandinn vera endurskoðandi við PRIME BANK í London. Hann segist leita eftir samstarfi við heiðarlegan aðila í því skyni að flytja úr landi rúmar 8,5 milljónir sterlingspunda (GBP). Því er heitið að upphæðinni verði skipt til helminga.

Þetta er enn ein tegundin af tölvupósti sem sendur er út í þeim tilgangi að svíkja fé út úr auðtrúa fólki.

Svokölluð Nígeríubréf innihalda gylliboð sem ekki eru á rökum reist. Að baki þeim standa óprúttnir aðilar sem svífast einskis. Því miður hafa margir Íslendingar látið glepjast og fjárhagslegt tjón þeirra er umtalsvert.

Svikahrapparnir beita ýmsum brögðum og velþekkt er brella þeirra sem þykjast vera fulltrúar erlendra ríkisstjórna. Gjarnan eru sendar tilkynningar þar sem fólki er lofað ótrúlegustu hlutum. Dæmi um það er að upplýsa fólk um að þess bíði vænn arfur. Svikahrapparnir notast einkum við tölvupóst en talið er að 1% viðtakenda láti blekkjast. Til að koma málum af stað er viðkomandi fenginn til að leggja fram ákveðna upphæð sem vindur stöðugt upp á sig. Sífellt þarf að bæta við upphæðina svo arfurinn, eða hvað það nú er, geti komist í réttar hendur. Stöðugt eru færðar fram nýjar afsakanir til að hafa enn meira fé af hinum hrekklausu.

Einnig er algengt að “happdrættisvinningar” séu nýttir í blekkingarskyni. Viðtakandi fær þá tilkynningu um að hann hafi hlotið vinning. Síðar er viðtakanda greint frá því að hann þurfi að leggja fram tiltekna upphæð áður en vinningurinn verði greiddur út. Málið vindur síðan upp á sig og stöðugt er leitast við að hafa meira fé af fórnarlambinu.

Almenningur ætti einnig að varast slíkar tilkynningar en umfram allt að leita til lögreglu þegar gylliboðin berast og grunsemdir vakna. Það er margt að varast, ekki síst í netviðskiptum. Hér að neðan má nálgast gagnlegar upplýsingar en viðvaranir lögreglu eiga jafn vel við og áður.

          Skoða síðuna "Fjársvik á netinu"

Tölvubréf sem innihalda morðhótanir

Áður hefur Ríkislögreglustjórinn varað við svikahröppum er senda einstaklingum tölvubréf sem innihalda morðhótanir.

Að undanförnu hefur nokkuð borið á að Íslendingar fái hótunarbréf í tölvupósti sem virðist vera frá leigumorðingja þar sem viðtakanda er hótað lífláti greiði viðkomandi ekki háa upphæð á bankareikning erlendis. Það sem um ræðir er ný tegund ruslpósts sem kallast “hit man scam” eða “killer spam”. Þessi tegund tölvupósts er ein tegund svindls sem kennd er við grein ”419” en það er ákvæði í nígerískum hegningarlögum er varðar fjársvik. Alríkislögreglan í Bandaríkjunum FBI og New Scotland Yard í Bretlandi hafa fengið margar kvartanir frá fólki vegna þessara sendinga. Samkvæmt yfirmanni kvörtunarmiðstöðvar internetsins hjá FBI (IC3) er þessum tölvubréfum ekki beint gegn fyrirfram ákveðnum aðilum og hefur IC3 ekki fengið fregnir af því að fólk hafi tapað peningum á þessu eða að einhverjum hafi verið unnið mein.

Í tölvupóstinum kemur fram að greiði viðtakandi tiltekna upphæð inn á bankareikninga erlendis þá verði lífi viðkomandi þyrmt. Svikahrapparnir beita ýmsum brögðum og er nýleg aðferð þeirra að senda tölvupóst í nafni erlendra lögreglustofnana eins og FBI. Þar kemur fram að nafn viðtakanda hafi fundist í fórum handtekins leigumorðingja sem myrt hafi einstaklinga í Bandaríkjunum og Bretlandi. Fórnarlömbin hafi ekki greitt þá upphæð sem krafist var fyrir að þyrma lífi þeirra. Er viðtakandi beðinn um að svara tölvupóstinum til að hjálpa til við frekari rannsókn málsins.

Svikahrapparnir velja netföng af handahófi og eins og öðrum “Nígeríubréfum” á alls ekki að svara þessum. Ef slíku bréfi er svarað halda hótanirnar áfram.

Almenningi er bent á að leita til lögreglu berist sambærilegur póstur og lýst er hér að framan.


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
ríkislögreglustjórinn fer með yfirstjórn lögreglumála í umboði dómsmálaráðherra ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur