Námsgreinar í grunnnámi Lögregluskóla ríkisins eru í höfuðatriðum eins og hér segir: Lögfræði Lögð skal áhersla á að fræða nemendur um íslenskt réttarkerfi og veita þeim undirstöðuþekkingu í refsirétti og opinberu réttarfari. Farið er yfir ákvæði stjórnarskrárinnar, einkum með áherslu á mannréttindaákvæði. Fjallað er um lögreglulög og helstu sérlög, reglur og samþykktir, þar sem gert er ráð fyrir afskiptum, eftirliti eða stjórnun af hálfu lögreglu. Námsgreinar í lögfræði eru réttarfar, refsiréttur, lög og reglur, lögregluréttur og mannréttindi/stjórnarskrá. Lögreglufræði Leitast skal við að efla færni nemenda í mannlegum samskiptum og veita þeim innsýn í ýmsa þætti íslensks mannlífs og samfélags. Fræða skal nemendur um sögu, skipulag og uppbyggingu lögreglu hér á landi og um helstu atriði sem lúta að framkvæmd lögreglustarfa. Kenna skal sérstaklega umferðarlög og reglur sem gilda samkvæmt þeim. Þjálfa skal nemendur í að rita lögregluskýrslur og kenna þeim höfuðatriði lögreglurannsóknar, með sérstakri áherslu á vettvangsvinnu og verndun vettvangs. Námsgreinar í lögreglufræði eru lögreglufræði, lögreglurannsóknir, lögreglukerfið og umferðarfræði. Mál og sérgreinar Leitast skal við að bæta kunnáttu nemenda í íslenskri stafsetningu og málfræði, ásamt því að þjálfa þá í að rita lipran texta og ná tökum á undirstöðuatriðum í tölvufræði. Kennd eru atriði úr hagnýtri sálarfræði er snerta lögreglustarfið. Gera skal nemendur hæfa um að koma fram og hegða sér þannig, við borgarann og samstarfsmenn, að eðlilegt þyki. Námsgreinar í málum og sérgreinum eru íslenska, streitu- og tilfinningastjórnun og félagsvísindi. Þjálfun Kennd eru meginatriði fyrstu hjálpar og grunnnámskeiði í þeirri grein lokið. Lögð skal áhersla á líkamsþjálfun er miði að því að byggja upp þrek og liðleika nemenda, þ.á m. sundþol þeirra. Áhersla er lögð á gildi góðrar líkamsþjálfunar til að takast á við lögreglustarfið. Þjálfun fer fram í lögreglusiðum, kynnt eru lögreglutæki og undirstöðuatriði er lúta að sjálfsvarnar- og handtökuaðferðum sem lögregla getur þurft að beita. Námsgreinar í þjálfun eru fyrsta hjálp, björgunarsund, lögregluæfingar og líkamsþjálfun. Verklegar æfingar Nemendur fá, með verklegum æfingum og á sérstökum verkefnadögum, þjálfun í úrlausn verkefna þar sem reynir á kunnáttu þeirra í beitingu réttarreglna, beitingu valds, framkomu og framkvæmd lögreglustarfa almennt. |