Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
 Innbrot og þjófnaðir  
 Ofbeldi  
 Fíkniefni og aðrir vímugjafar  
 Netið  
   Internetið  
   Öruggt spjall  
   Börn og netið  
 Kynferðisbrot  
 Ýmis ákvæði laga um börn  
 Fræðsluefni  
 Greinar  
 Vefir um forvarnir  
 Ýmislegt  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Internetið   
Börn og Internetið
-Ábendingar til forráðamanna barna-

Til foreldra barna sem hafa aðgang að Internetinu. Borið hefur á því að óprúttnir náungar "lokki" til sín börn á spjallrásunum með ýmislegt misjafnt í huga. Einnig er að finna ýmislegt miður gott efni á netinu s.s. klám og fordóma af ýmsu tagi. Foreldri sem sýnir áhuga er besta vörn barns sem ferðast um á netinu. Hér eru nokkrar ábendingar í þessu sambandi:
  • Foreldrar ættu sjálfir að gerast Internetnotendur eða í það minnsta auka kunnáttu sína í þeim efnum.
  • Foreldrar ættu að ferðast um Internetið með börnum sínum.
  • Tölvan á heimilinu ætti að vera staðsett þannig að foreldrar sjái hvað börnin eru að aðhafast. Það er ekki ráðlegt að leyfa ungum börnum að hafa tölvur tengdar Internetinu í herbergjum sínum.
Kenna þarf börnum helstu varnir þegar ferðast er um Internetið. Alveg eins og við kennum þeim hvernig þau eiga að hegða sér í umferðinni verðum við að upplýsa þau hvernig þau eiga að hegða sér á netinu. Hér eru nokkur atriði sem Childnet International* bendir á að reynst geti hjálpleg:
  • Börn ættu alltaf að segja foreldrum eða forráðamönnum ef þau sjá eitthvað sem þeim finnst óþægilegt.
  • Þau ættu aldrei að láta í té persónulegar upplýsingar á netinu s.s. nafn, heimilisfang, símanúmer, skóla, kreditkortanúmer og hvað þá að senda myndir af sjálfum sér.
  • Þau ættu aldrei að gefa upp aðgangsorð eða leyniorð.
  • Þau ættu aldrei að samþykkja að hitta einhvern sem þau hafa haft samskipti við á Internetinu án samþykkis forráðamanna. Gott væri ef forráðamaður væri með í för þegar til slíks fundar er gengið.
  • Ekki opna tölvupóst eða gögn sem send eru frá ókunnugum. Slík gögn gætu m.a. smitað tölvur með vírus eða innihaldið óæskilegt efni.
  • Börn ættu ekki að vera í samskiptum á spjallrásum eða með tölvupósti við einhvern sem þeim finnst vera óþægilegur af einhverjum ástæðum.
Eins og kom fram hér að ofan eru foreldrar besta vörn barna sem ferðast um Internetið en til er hugbúnaður (síur) sem gerir foreldrum kleift að takmarka aðgengi barna að óæskilegu efni á vefnum. Auk þess býr flestur hugbúnaður sem smíðaður er í þessum tilgangi einnig upp á marga aðra möguleika s.s. eftirlit með heimsóknum á vefsíður, spjallrásir og fréttahópa. Hafið í huga að þessi hugbúnaður hindrar ekki að óæskilegt efni birtist en hann getur dregið úr líkum á því.

Hér eru vefslóðir að hugbúnaði sem unnt er að nota í þessum tilgangi:

Cybersitter -
Net Nanny - Cyper Patrol - Cyper Snoop


Hægt er að fá hugbúnaðinn til reynslu, án kostnaðar, eða kaupa hann með öllum þeim möguleikum sem ekki fylgja reynsluútgáfu. Hugbúnaður þessi er mismunandi og verður ekki lagt mat á hann hér eða gert upp á milli hans.

Aðrar áhugaverðar síður fyrir foreldra og börn:

GetNetWise - INHOPE - Internet Watch Foundation - SafeKids.com - FBI (vefsíða fyrir yngri börn) - FBI (vefsíða fyrir eldri börn og unglinga)


* Childnet International eru einkasamtök stofnuð 1995 í þeim tilgangi að auka áhuga barna á alþjóðlegum samskiptum. Heimasíða þeirra er mjög áhugaverð fyrir foreldra og börn.

Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að frá og með 1. janúar hefur lögreglustjórinn á Ísafirði haft með höndum stjórn löggæslu á Vestfjörðum og tók yfir stjórn löggæslu í Bolungavík, á Hólmavík og á Patreksfirði
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur