Þessi kíkir er í óskilum hjá lögreglunni í Reykjavík. Eigandi hans er vinsamlegast beðinn um að nálgast hann hjá rannsóknardeild embættisins.  Bifhjóli stolið frá Framnesvegi. Bifhjóli af gerðinni Suzuki RMX með skráningarnúmerinu EE107 var stolið frá Framnesvegi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar hjólið er að finna eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 561 1166 
Peningaskápur í óskilum. Lögreglan í Reykjavík hefur undir höndum læstan peningaskáp, sem fannst nýlega í Austurborginni. Sá, sem telur sig eiga skápinn, getur vitjað hans á lögreglustöðinni Hverfisgötu 113.

Lögreglan í Reykjavík lagði hald á töluvert magn af stórum hljómflutningstækjum, eins og notuð eru á skemmtistöðum eða félagsmiðstöðvum, mánudaginn 28.janúar 2002. Þar eru tæki, eins og GMINI samstæða (tveir Technics plötuspilarar og Numark hljóðmixer), tveir stórir JBL TR-225 hátalarar, EV SH-1512ER hátalari, JBL EON Power sub hátalari með magnara, JBL EON 10 hátalari með magnara, AUDIOPRO 20 rása hljóðmixer. Einnig eru ABSTRACT Twister, ABSTRACT Wildstar, SOUND LAB mini strobe ljósashow, SOUND LAB Fogger 2 reykvél. Þeir sem þekkja þessi tæki, eða hafa vísbendingar um hvaðan tækjunum var stolið, eru beðnir um að hafa samband við rannsóknarlögreglumenn í Auðgunarbrotadeild Lögreglunnar í Reykjavík í síma 569 9200.





Aðfaranótt 14.05.2001 var brotist inn í Lífsmynd að Tryggvagötu 10, Rvk. Þar var stolið m.a. Sony Digital Video myndavél "DXC-D30P" að verðmæti kr. 900.000,-. Einnig var stolið Eagle/3 linsu fyrir kvikmyndatökuvélina raðnr. 0891000458 að verðmæti kr.300.000,- Sá/þeir sem geta gefið uppl. um þessa muni, hafi samband við rannsóknardeild lögreglu í síma 569 9000.

---------------------------------------------------------------------------------
Þessi handhæga rafsuðuvél af DRAPER-1600T gerð er hjá lögreglunni í Reykjavík. Sá, sem saknar vélarinnar, en grunur er um að henni hafi verið stolið, hafi samband við lögregluna - netfang: gunnleifur@lr.is eða í síma 569-9020.

------------------------------------------------------------------------------
Þessari kerru var stolið um mánaðarmótin mars/apríl frá Háaleitisbraut. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar hana er að finna eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 569 9020
 |