Lögregluskóli ríkisins hefur gefiđ út ársskýrslu fyrir starfsemi skólans áriđ 2011. Í ársskýrslunni kemur m.a. fram ađ viđ rekstur skólans á árinu hafi veriđ lögđ áhersla á ađ stofnunin gćtti ţess ađ verja kjarnastarfsemi sína, en jafnframt ađ leita allra leiđa til ađ ná fram nauđsynlegri hagrćđingu. Starfsemin gekk almennt vel, afkoman var svipuđ og áćtlun gerđi ráđ fyrir og tekjuafgangur var í árslok.
Ađstćđur sköpuđust til ađ hagrćđa í rekstri grunnnámsdeildar skólans međ breytingum á lögreglulögum sem tóku gildi 1. mars 2011. Skólinn greiđir nemendum nú mánađarlaun í starfsnámi en bóknámiđ er allt ólaunađ. Međ breyttu fyrirkomulagi er dregiđ nokkuđ úr launakostnađi frá ţví sem veriđ hefur, auk ţess sem skapast hefur meiri sveigjanleiki í starfsemi grunnnámsdeildarinnar og ţar međ afl til aukinna afkasta.
Jafnskjótt og Alţingi hafđi samţykkt breytingar á lagaákvćđum varđandi tilhögun grunnnáms viđ skólann var tekin ákvörđun um ađ grunnnám 20 nemenda hćfist ţann 1. mars 2011. Jafnframt var ákveđiđ, í ljósi ţess hve seint á árinu námiđ hófst, ađ skipta ţví í fjórar annir, bóknám í fjóra mánuđi, starfsnám í ţrjá mánuđi, bóknám í fjóra mánuđi og starfsnám í einn mánuđ. Brautskráning nemenda fór fram föstudaginn 23. febrúar 2012.
Ađsókn á námskeiđ sem bođiđ var upp á í framhaldsdeild skólans var í međallagi. Von er til ţess ađ betri tíđ sé í vćndum og ađ skólinn geti bođiđ lögreglumönnum ađ mennta sig og ţjálfa frekar, einkum í rannsóknum sakamála og stjórnun.
Í ársskýrslunni kemur fram ađ undanfarin ár hafi starfandi lögreglumönnum fćkkađ nokkuđ. Mál sé ađ linni og raunar sé orđiđ mjög brýnt ađ faglćrđum lögreglumönnum verđi fjölgađ töluvert. Starfsmenn Lögregluskóla ríkisins eru bjartsýnir og hafa trú ađ í vćndum séu góđ ár, enda er vonin sú ađ góđar undirtektir fáist viđ hugmyndum skólana og nćgilegt svigrúm til ađ geta ţjónađ lögreglunni á Íslandi í samrćmi viđ hlutverk skólans og lögreglunnar.
Ársskýrsluna í heild sinni er ađ finna hér á Lögregluvefnum. |