|
|
|
Bent hefur verið á og varað við brotamönnum sem læða slævandi lyfjum út í drykki, oftast kvenna á veitingastöðum eða í tengslum við skemmtanir af einhverju tagi, til þess að skapa sér yfirburða stöðu gagnvart brotaþolum kynferðisbrota. Ákvæði almennra hegningarlaga geyma viðurlög við þessari háttsemi í 22. kafla laganna. Á vettvangi fjölmiðla hefur verið bent á að lyfið Rohypnol hafi verið misnotað í þessum tilgangi og alvarleg afbrot nefnd til sögunnar frá öðrum löndum. Lyfið hefur fengið á sig ýmis "götuheiti" sem flest tengjast misnotkun - með því að lyfinu var lætt út í vínglös brotaþola kynferðisbrota. Rohypnol er í flokki svefnlyfja og er notað hér á landi í lækningarskyni með góðum árangri. Lyfið leysist vel upp og er verkun þess venjulega innan 20 mínútna frá inntöku. Varað er við notkun lyfsins meðan neytt er áfengis. Segja má að menn geti misnotað öll lyf og þótt í umræðunni sem hér er höfðað til hafi sérstaklega verið bent á Rohypnol eru ýmis önnur lyf misnotuð í sama tilgangi með alvarlegum afleiðingum. Framleiðandi Rohypnol hefur í öryggisskyni sett litarefni í lyfið sem gerir það að verkum að efnasambönd leysast úr læðingi þegar lyfið er sett í vökva (svo sem áfengisblöndur) og grugga yfirborð vökvans eða gera hann óaðlaðandi útlits ef svo má segja. Lyfið með þessum eiginleikum er nú komið á markað hér á landi. Engu að síður er aðgát nauðsynleg og ástæða til þess hér á heimasíðunni að minna fólk á að passa glösin sín og skilja þau ekki við sig tímabundið eða þiggja veitingar hjá ókunnugum þegar ekki er vitað hvað er í boði. Mikilvægt er að brotaþolar leiti sér aðstoðar sem fyrst þegar grunur kviknar um athæfi af þessum toga. Er í því sambandi bent á lögreglu, lækna eða Neyðarmóttöku Sjúkrahús Reykjavíkur. Hjá ríkislögreglustjóranum svarar Gísli Pálsson aðstoðaryfirlögregluþjónn ef einhverjar spurningar koma upp.
|
Senda grein |
|
|
|
 |
 |
 |
| |
|
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
 |
 |
 |
Vissir
þú að....
um 80% þeirra sem eru sviptir eru ökuréttindum vegna umferðarpunkta eru karlmenn, yngri en 20 ára ? |
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.jpg) |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
 |
|
| |
.gif) |
|
| |
 |
|
|