Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
 Innbrot og þjófnaðir  
 Ofbeldi  
 Fíkniefni og aðrir vímugjafar  
   Foreldrarölt  
   Talaðu við barnið þitt  
   Um kannabisefni  
   Upplýsingar og aðstoð  
   Vímuefnaneysla ungmenna  
   Fíkniefnafræðsla  
 Netið  
 Kynferðisbrot  
 Ýmis ákvæði laga um börn  
 Fræðsluefni  
 Greinar  
 Vefir um forvarnir  
 Ýmislegt  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Dómsmálaráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Foreldrarölt   
Á undanförnum árum hafa foreldrar og forráðamenn í samstarfi við foreldrafélög skólanna, félagsmiðstöðvarnar og lögregluna farið í skipulagt foreldrarölt á kvöldin um helgar. Um er að ræða sjálfboðaliðastarf foreldra þar sem leitast er við að ná fram samstöðu þeirra á meðal um að virða reglur um útivist barna og koma í veg fyrir hópamyndun unglinga eftir að lögbundnum útivistartíma er lokið.

Framkvæmd
Foreldraröltið er skipulagt innan hvers foreldrafélags og eru allir foreldrar hvattir til þátttöku. Safnað er nöfnum og símanúmerum þeirra foreldra sem hafa áhuga á að vera með og útbúinn er listi þar sem fólki er raðað niður á helgarnar. Komið er upplýsingum til tengiliða í félagsmiðstöðum og lögreglu um það hverjir eru með foreldrarölt og hvernig því verður háttað.

Þeir foreldrar sem fara á röltið hittast oftast í skólanum, félagsmiðstöðinni eða á lögreglustöðinni á föstudagskvöldi þar sem gjarnan er farið yfir atburði síðustu helga með því að skoða dagbækur sem margir foreldraröltshópar halda. Síðan er gengið um hverfið og komið við á þeim stöðum þar sem unglingar safnast saman svo sem við sjoppur, leiktækjasali, verslunarmiðstöðvar og skóla. Áhersla er lögð á að foreldrar reyni að hafa áhrif á hegðun unglinganna með nærveru sinni en hafi sem minnst bein afskipti af þeim nema nauðsyn beri til.

Hvers vegna að fara á foreldrarölt?
Einn megin kosturinn við foreldraröltið er sá að reynslan hefur sýnt að nálægð fullorðinna hefur yfirleitt þau áhrif að unglingahópurinn leysist upp og ólíklegt er að landa- eða vímuefnasölumenn geri vart við sig þegar foreldrar vakta svæðið.

Það getur einnig verið lærdómsríkt og gaman að fara á foreldrarölt, kynnast öðrum foreldrum, heyra viðhorf þeirra og jafnvel komast að því að flestir foreldrar fá að heira rökin "allir mega það".

Með því að fara á foreldrarölt geta foreldrar áttað sig betur á því hvað fer fram í hverfinu á kvöldin um helgar og hvar hætturnar leynast. Þannig sjá þeir oft staði eins og sjoppur og verslanir í nýju ljósi er þeir uppgvöta þau skúmaskot sem geta leynst þar og unglingarnir nota til að neyta áfengis og annarra vímuefna í friði. Þá geta foreldrar fylgst með því hvort sjoppur eru að selja sígarettur til barna undir aldri, hvort börn undir aldri komist inn í spilasali, bari eða skemmtistaði í hverfinu og hvort þeim sé veitt áfengi á þessum stöðum


Markmið foreldraröltsins eru því margþætt:

c Að virkja foreldra til samstöðu um að virða reglur um útivist barna og unglinga og að koma í veg fyrir hópamyndun unglinga eftir að lögbundnum útivistartíma er lokið.

c Að draga úr áfengis- og fíkniefnaneyslu unglinga.

c Að efla og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu.

c Að kanna hvað fer fram í hverfinu á kvöldin.

c Að ná sambandi við þá unglinga sem eru útivið.

c Að vera til staðar ef unglingar eru illa á sig komnir og þarfnast aðstoðar.

c Að koma á tengslum milli foreldra í hverfinu sem eiga börn á unglingsaldri.

c Að sýna unglingum góða fyrirmynd.

Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að frá og með 1. janúar 2007 tók lögreglustjórinn á Hvolsvelli yfir löggæslu á Vík
 
  Fíkniefnasíminn  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð