Til umhugsunar þegar bíllinn er skilinn eftir Mjög mikið er um innbrot í bifreiðar og því ærin ástæða til gera það sem hægt er til að minnka hættuna á slíku. Hér eru nokkrar ábendingar sem gætu komið að gagni í þessu sambandi.
Ólæst bifreið er auðvelt skotmark.
Því ætti aldrei að skilja bifreið eftir ólæsta með glugga niðri eða sóllúgu opna.
Sýnilegur varningur er freistandi fyrir þjófa.
Varist að skilja varning eftir í bílnum því hann getur virst verðmætur og þar af leiðandi góð ástæða til að fara inn í bílinn. Þannig sér innbrotsþjófur ekki hvort lokuð skjalataska sé tóm eða ekki, að öllum líkindum sér hann fyrir sér að í töskunni séu peningar, ávísanir eða önnur verðmæti.
Falinn varningur gefur vísbendingar um verðmæti.
Það er ekki nóg að breiða yfir varninginn í bílnum, ef þjófarnir sjá að eitthvað er falið undir ábreiðu eða öðru gerir það bílinn ennþá meira spennandi til innbrots.
Verkfæri eru góð söluvara. Mjög miklu af verðmætum verkfærum er stolið úr bifreiðum, því er ástæða til að taka a.m.k. verðmætustu verkfærin úr bílnum þegar hann er yfirgefinn
Hanskahólfið er yfirleitt fyrsti staðurinn sem innbrotsþjófar leita á.
Því er lítil vörn í því að geyma peningaveski eða önnur verðmæti þar.
Límmiðar og annað sem gefur til kynna dýr hljómflutningstæki eykur hættuna á innbrotum.
Ekki auglýsa hljómflutningstækin með límmiðum eða öðru því það gerir bílinn að freistandi skotmarki.
Þjófar eiga erfiðara með að athafna sig í næði ef bílnum er lagt á vel upplýstum stað.
Forðist því að leggja bílnum á dimmum eða illa upplýstum stað, þá fá þjófarnir meira næði. Mikið af innbrotum upplýsast vegna tilkynninga um grunsamlegar mannaferðir í kringum bíla.
Innbrot í bíla í bílageymslum eru ekki síður algeng en innbrot í bíla sem geymdir eru utandyra.
Því er mikilvægt að tryggja öryggi bílageymslunnar, að aðeins þeir sem eiga erindi þangað hafi aðgang, passa upp á bilaðar hurðir og annað sem veitt getur óviðkomandi aðgang.
|