Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Vestfirðir - 18  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Upplýsingar  
 Ársskýrslur  
 Leyfi - eyðublöð  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Vestfirðir - 18 - Umdæmið   

Landið skiptist í 15 lögregluumdæmi. Með lögreglustjórn í umdæminu fer lögreglustjórinn á Vestfjörðum með aðsetur á Ísafirði en hann er jafnframt sýslumaður í Ísafjarðar- og Barðastrandasýslum. Sveitarfélög í umdæmi sýslumannsins á Ísafirði eru: Ísafjarðarbær og Súðavíkurhreppur. Sýslumaðurinn á Ísafirði er eini sýslumaðurinn á Vestfjörðum sem jafnframt er lögreglustjóri. Sveitarfélög í umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum eru: Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur. Vestfirðir skiptust áður í fimm sýslur: Austur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu, Norður-Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu en í dag er venja að tala fremur um Barðastrandarsýslur, Ísafjarðarsýslur og Strandir. Barðastrandarsýslur ná frá syðsta hluta Vestfjarðarkjálkans, frá botni Gilsfjarðar að austanverðu út á Látrabjarg að vestan og norður að Langanesi í Arnarfirði. Margar eyjur Breiðafjarðar tilheyra sýslunni. Strandasýsla heitir eftir strandlengjunni frá Hrútafirði norður að Geirólfsnúpi. Ísafjarðarsýslur taka yfir landsvæðið frá Langanesi í Arnarfirði allt norður i Horn og þaðan í Geirólfsnúp við sunnanverðan Reykjafjörð, þar sem sýslumörk Ísafjarðar- og Strandasýslu eru. Þannig nær umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum yfir nær allan Vestfjarðarkjálkann að undaskyldum Bæjarhreppi í Strandasýslu, en hann sameinaðsti Húnaþingi Vestra þann 1. janúar 2012.  Umdæmið nær norður Strandir og fyrir Hornbjarg, suður fyrir Látrabjarg til Gilsfjarðar. Sýslumörk eru áfram við Vestur-Húnavatnssýslu í austri, Mýrasýslu og Dalasýslu í suðri.

Íbúar í umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum 1. desember 2012 voru 7020 og skiptist þannig eftir sveitarfélögum: Bolungarvíkurkaupstaður 910, Ísafjarðarbær 3750, Súðavíkurhreppur 180, Árneshreppur 50, Kaldrananeshreppur 100, Strandabyggð 520, Reykhólahreppur 280, Vesturbyggð 940 og Tálknafjarðarhreppur 290.

Lögregluvarðstöðvar eru á Ísafirði, Hólmavík og á Patreksfirði og lögreglumenn eru 18 talsins.

Þröngir og mjóir firðir með háum og bröttum fjöllum sem ganga víða í sjó fram eru lýsandi fyrir vestfirskt landslag. Hálendi Vestfjarða einkennist hins vegar af því hve flatt það er. Fuglalíf er mikið og auðug fiskimið stutt frá landi.

Friðlönd á Vestfjörðum eru: Flatey á Breiðafirði. Austurhluti eyjarinnar lýst friðland með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, nr. 395/975. Hrísey í Reykhólahreppi. Lýst friðland með auglýsingu i B-deild Stjórnartíðinda, nr. 425/1977. Vatnsfjörður, Vesturbyggð. Lýstur friðland með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, nr. 96/1975. Hornstrandir, Ísafjarðarbæ. Friðland 1975. Friðlýsing endurskoðuð með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, nr. 332/1985. Náttúruvætti: Dynjandi í Arnarfirði. Friðlýstur sem náttúruvætti 1981. Friðlýsing endurskoðuð með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, nr. 348/1986. Surtabrandsgil á Barðaströnd. Friðlýst sem náttúruvætti með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 103/1975. Breiðafjörður er friðlýst svæði en um Breiðafjörð eru í gildi lög nr. 54/1995, um verndun Breiðafjarðar.

Umhverfisstofnun og lögreglustjórinn á Vestfjörðum fara með eftirlit í Hornstrandafriðlandinu. Reglur friðlandsins eru þessar:

Á tímabilinu 15. apríl til 15. júní þarf að tilkynna Umhverfisstofnun um öll ferðalög á svæðinu. Nauðsynlegt er að hafa eftirfarandi fyrirmæli Umhverfisstofnunar í huga þegar farið er á Hornstrandir, en þau voru sett í þeim tilgangi að vernda land og minjar og stuðla að góðri sambúð ferðafólks og landsins:

1. Öll veiði og nytjar hlunninda, svo og notkun á húsum er háð leyfi landeigenda á hverjum stað.

2. Skýli Slysavarnafélagsins eru einungis ætluð til notkunar í neyð, og allt sem í þeim er, þar á meðal talstöðvar.

3. Tjaldsvæði í Hornvík eru aðeins í Innstadal og við Höfn.

4. Skiljið hvergi eftir rusl né urðið það á víðavangi. Athugið að vindlingastubbar eru líka rusl.

5. Kveikið ekki elda á grónu landi.

6. Ef hlaða þarf grjóti að tjöldum þá dreifið því aftur þannig að engin ummerki sjáist.

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur jafnframt sett eftirfarandi reglur um friðlandið Hornstrandir:

1. Hvers kyns meðferð skotvopna er öllum bönnuð mánuðina júní til september nema að fenginni sérstakri heimild sýslumanns. Utan þess tíma er veiði einungis heimil landeigendum til         hefðbundinna nytja.

2. Öll veiði, bæði fugla og fiska, er bönnuð án leyfis landeigenda, sem í hlut eiga.

3. Öll umferð vélknúinna ökutækja, þ.á.m. torfærutækja, snjósleða, fjórhjóla, dráttarvéla og jeppabifreiða, er bönnuð utan vega og merktra slóða.

4. Á tímabilinu 15. apríl til 15. júní ár hvert þarf að tilkynna Umhverfisstofnun um ferðalög í friðlandinu. Þetta ákvæði tekur þó ekki til ferða landeigenda.

5. Gangandi fólki er heimil för um svæðið. Þó er skylt að ganga þannig um að ekki sé spillt lífríki, jarðmyndunum og mannvirkjum.


Senda grein

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að frá og með 1. janúar 2007 tók lögreglustjórinn á Hvolsvelli yfir löggæslu á Vík
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur