Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið. M.a. líkamsárás, ölvunarakstur, eignaspjöll ofl.
Aðfaranótt 9. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um slagsmál fyrir utan veitingastaðinn Lundann. Þarna hafi tveimur mönnum eitthvað sinnast með þeim afleiðingum að annar þeirra rotaðist eftir að hinn sló hann. Var viðkomandi fluttur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja til aðhlynningar. Hann mun ekki vera alvarlega meiddur.
Þann 10. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að skemmdir hafi verið unnar á einum klefa um borð í Herjólfi. Mun klefinn hafa verið skemmdur í seinni ferð skipsins frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar. Leikur grunur á hver þarna var að verki en hins vegar óskar lögreglan eftir upplýsingum frá farþegum varðandi það skemmdarverk sem þarna var unnið til að upplýsa málið frekar. Meðal þess sem skemmt var er að á salerni var brotinn spegill, ljós og hilla. Þá var í klefanum sjálfum var m.a. útvarpshátalari rifinn niður, kojuhengi rifið niður ofl. skemmt.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur og má hann búast við sviptingu ökuréttar og sekt vegna þessa brots. Af öðrum brotum á umferðarlögum má nefna að einn ökumaður var sektaður vegna hraðaksturs en hann mældist á 70 km/klst. á Hamarsvegi en eins og ökumenn eiga að vita þá er hámarkshraði á Hamarsvegi 50 km/klst. Þá var einn ökumaður stöðvaður þar sem hann var réttindalaus við akstur. Einn ökumaður var sektaður fyrir að hafa ekki öryggisbeltið spennt við akstur.
Þann 10. apríl sl. barst lögreglunni tilkynnig frá Herjólfi um að gámur með trékurli hafi runnið til á þilfari skipsins þegar skipið var á siglingu frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja og hafi trékurlið lent á bifreiðum sem stóðu á dekkinu. Ekki varð mikið tjón á bifreiðunum en lakk þeirra mun þó hafa rispast.
Lögreglan vill minna eigendur ökutækja á að samkvæmt reglum þá lýkur heimild til aksturs á nagladekkjum nk. laugardag, eða þann 15. apríl nk. en óheimilt er að aka á negldum hjólbörðum á tímabilinu frá 15. apríl til og með 31. október. Hins vegar er heimilt að aka á nelgdum hjólbörðum, á þessu tímabili, ef aðstæður krefjast þess. Af þeim sökum mun lögreglan ekki sekta þá ökumenn sem aka á negldum hjólbörðum fyrst um sinn. Sekt vegna aksturs á negldum hjólbörðum er kr. 5000,- |