Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Vestmannaeyjar - 32  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Ársskýrslur  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Vestmannaeyjar - 32 - Helstu verkefni   
16.7.2012

Helstu verkefni 9. júlí til 16. júlí 2012

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið vegna hinna ýmsu mála sem upp komu.  Skemmtana hald helgarinnar fór þokkalega fram en þó var ein líkamsárás kærð og nokkuð um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum.

 

Undir morgun þann 15. júlí sl. var lögreglu tilkynnt um líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Volcano.  Þarna höfðu orðið orðaskipti á milli tveggja manna, sem eru rúmlega tvítugir, með þeim afleiðingum að annar sló hinn með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð féll afturfyrir sig um blómaker og lenti með hnakkann í götunni.  Hann var í framhaldi af því fluttur á sjúkrahús Vestmannaeyja og síðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús vegna þeirra höfuðáverka sem hann fékk í árásinni.   Árásarmaðurinn var handtekinn og fékk að gist fangageymslu lögreglu og var yfirheyrður þegar víman rann af honum.  Hann viðurkenndi að hafa slegið manninn en kvaðst ekki hafa ætlað að valda honum þeim áverkum sem hann fékk.  Málið telst að mestu upplýst. 

 

Tveir fengu að gista fangageymslu lögreglu vegna ölvunarástands. Í öðru tilvikinu hafði maður vel við skál komið með Herjólfi til Vestmannaeyja og virtist ekki vita hvar hann var. Fékk hann gistingu á lögreglustöðinni og fór til baka með Herjólfi þegar víman rann af honum.  Í hinu tilvikinu hafði maður í annarlegu ástandi komið inn í verslunina Klett v/Strandveg og farið að róta í öllu þar inni og virtist sem hann væri að leita að lyfjum.  Var hann vistaður í fangageymslu þar til víman rann af honum.

 

Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en komið var með bakpoka á lögreglustöðina sem í voru nokkrar töflur auk áhalda til neyslu fíkniefna.  Ekki er vitað hver er eigandi pokans.

 

Alls liggja fyrir 6 kærur vegna brota á umferðarlögumeftir vikuna og var í tveimur tilvikum um hraðakstur að ræðar.  Í öðru tilvikinu mældist hraði bifreiðar 86 km/klst á Hamarsvegi en í hinu tilvikinu mældist hraði bifreiðar 70 km/klst á Strembugötu.  Þá voru tveir ökumenn sketaðir vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstri og í einu tilviki var ökumaður að tala í farsíma án handfrjálsbúnaðar í akstir og fékk að launum sekt.   Ein afstunga vegna umferðaróhapps var tilkynnt í vikunni en talið er að ekið hafi verið utan í bifreið sem lagt var við Rauðakrosshúsið þann 12. júlí sl. Sá er tjóninu olli hafði hins vegar ekki fyrir því að tilkynna um óhappið og eru þeir sem einhverjar upplýsingar hafa sem leitt gæti til lausnar málsins beðnir um að hafa samband við lögreglu.

 


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
hámarkshraði á þjóðvegum (bundnu slitlagi) er 90 km/klst ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur