Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Vestmannaeyjar - 32  
 Fréttir  
 Tilkynningar  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Ársskýrslur  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Vestmannaeyjar - 32 - Helstu verkefni   
4.11.2008

Helstu verkefni 27. október til 3. nóvember 2008.

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið og töluvert að gera aðfaranótt 1. nóvember sl. vegna hinna ýmissa mála sem upp komu er varðaði ölvunarástand gesta öldurhúsanna.

 

Að morgni 1. nóvember sl. var par handtekið eftir að það hafi brotið rúðu á heimili lögreglumanns, sem hafði fyrr um nóttina haft afskipt af parinu.  Ljóst var, strax eftir eignaspjöllin að þau beindust gegn þessum lögreglumanni. Við yfirheyrslur viðurkenndi parið að hafa brotið rúðuna og gaf þá ástæðu að þau hafi verið óánægð með afskipti þess lögreglumanns sem þarna býr.  Lítur lögreglan svona hegðun mjög alvarlegum augum og fer að sjálfsögðu fram á að fólk sýni heimilum lögreglumanna sömu virðingu og heimilum annarra.

 

Tveir þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglu í vikunni en  í öðru tilvikinu er um að ræða þjófnað úr vösum gesta Íþróttamiðstöðvarinnar og er það mál upplýst.  Í hinu tilvikinu er um að ræða þjófnað á bjórkút sem var í bifreið sem merkt er Pizza 67.  Átti þjófnaðurinn sér stað síðdegis föstudaginn 31. október sl.  Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.

 

Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en síðdegist sl. föstudag hafði lögreglan afskipti af tveimur ungum mönnum sem sátu í bifreið á Skansinum og höfðu verið við neyslu fíkniefna.  Þeir viðurkenndu brot sitt og telst málið upplýst.  Haldlagt var smáræði af kannabisefnum í tengslum við málið.

 

Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um ölvun við akstur og eru þá stútar ársins orðnir 21  en á sama tíma í fyrra voru þeir 18.  Auk þess hafa 5 ökumenn verið stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna í ár,  en á sama tíma í fyrra voru þeir 2. 


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
ríkislögreglustjórinn rekur sameiginlega fjarskiptamiðstöð lögregluembætta á SV-horni landsins ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur