Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Selfoss - 33  
 Fréttir  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Leyfi - Eyðublöð  
 Myndasafn  
 Ársskýrsla  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Selfoss - 33 - Helstu verkefni   
18.4.2005

Helstu verkefni vikuna 12. til 18. apríl 2005

Lögregla hafði í vikunni afskipti af manni sem var að skjóta fugla í Gufudal norðan við Hveragerði.  Í ljós kom að maðurinn hafði skotið tvær aliendur.  Maðurinn sem hafði verið við stangveiðar í Varmá bar því við að hafa ekki vitað að endurnar væru í landi Hveragerðis né hafi hann grunað að þetta hefðu verið aliendur.  Lögreglan lagði hald á skotvopn og bráð. 

 

Á fimmtudagskvöld fékk lögregla tilkynningu um vélsleðaslys við Skriðutinda suðaustur af Skjaldbreið.  Ung kona sem var á vélsleða féll af honum er sleðinn lenti í eldri förum.  Konan hlaut skurð og mar á annan fótinn.  Í fyrstu var talið að hún væri fótbrotin og því var leitað eftir aðstoðar Landhelgisgæslunnar sem sendi þyrlu á staðinn og var konan flutt með henni til Reykjavíkur þar sem hún gekkst undir læknisrannsókn. 

 

Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af tveimur mönnum á föstudag vegna þjófnaðar á reiðtygjum.  Við yfirheyrslu viðurkenndu mennirnir að hafa brotist inn í hesthús í Mosfellsbæ fyrir um tveimur vikum og stolið þaðan tveimur hnökkum og nokkrum beislum.  Annar mannanna sem er um þrítugt hefur nokkrum sinnum áður komið við sögu lögreglu vegna þjófnaðar.  Hann bar því við að hafa legið undir líflátshótunum ef hann gerði ekki um 15 þúsund króna skuld og til að losna undan þeim hótunum hafi hann brugðið á þetta ráð til að geta greitt skuldina.  Þess má geta að reiðtygin sem stolið var eru ný að verðmæti um 200 þúsund krónur. 

 

Þrír ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina og einn fyrir akstur undir áhrifum lyfja.  Lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þjóðvegunum og  í því eftirliti voru 22 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur.  Nokkuð hefur verið um að ökumenn hafi hafi leitað til lögreglu vegna þess að þeir höfðu fest ökutæki sín á ýmsum hliðarvegum og slóðum.  Ástæðan er að frost er að fara úr jörðu og víða mikil aurbleyta og varasamt að fara inn á vegaslóða sem eru fáfarnir.  


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
að embætti ríkislögreglustjórans var stofnað 1. júlí 1997 ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur