Tveimur fjórhjólum var stolið úr gámi við Bolöldu á tímabilinu 14. til 18. maí síðastliðinn. Á gáminum var öflugur lás sem hafði verið skorinn í sundur með skurðarskífu. Hjólin eru af gerðinni Yamaha Grizzly 700cc, græn. Fjórhjólin voru á stærri dekkjum en gengur og gerist.
Um helgina var 200 til 300 lítrum af dísilolíu stolið af vörubifreið í eigu Lýsis. Bifreiðin stóð við Hafnarskeið í Þorlákshöfn.
Brotist var inn í húsnæði Rauða krossins við Eyraveg á Selfossi um helgina. Þaðan var stolið Lenovo fartölvu og Dell skjávarpa.
Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um þessa þjófnaði að hafa samband í síma 480 1010.
Ökumaður vélhjóls viðbeinsbrotnaði er hann féll af vélhjóli sínu á laugardag þar sem hann ók í keppnisbraut í Bolöldu.
Fimmtán ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í vikunni. Einn var kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fyrir ölvunarakstur. Nokkrir voru kærðir fyrir ýmiss konar umferðarlagabrot eins og t.d. fyrir að tala í farsíma í akstri.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi vinnur að rannsókn tveggja banaslysa sem urðu í síðustu viku.