Textahamur Helstu verkefni Netföng Fyrirspurnir English
Lögregluvefurinn  
Ríkislögreglustjórinn  
Lögregluskóli ríkisins  
Selfoss - 33  
 Fréttir  
 Helstu verkefni  
 Umdæmið  
 Leyfi - Eyðublöð  
 Myndasafn  
 Ársskýrsla  
 Fyrirspurnir  
Fréttir  
Tilkynningar  
Lausar stöður  
Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki  
Spurt og svarað  
Forvarnir, fræðsla og viðbrögð  
Sektir - punktakerfið  
Eyðublöð  
Saga lögreglunnar  
Áskriftir  
Lög og reglugerðir  
Tengt efni  
Akstursíþróttir  
Veitinga- og gistileyfi  
Öryggisþjónusta í atvinnuskyni  
Vegabréf  
Embættin - Kort  
Netöryggi  
Býrð þú við ofbeldi?  
   
Interpol+rdj
Europol+rdj
Schengen+rdj
Innanríkisráðuneytið -Linkur
Autt svæði
Vefstjori
     Selfoss - 33 - Helstu verkefni   
2.5.2011

Helstu verkefni vikuna 26.4. til 2.5.2011

Helgin var róleg í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. 

 

Á föstudag hafði lögregla afskipti af pari sem grunað var um að hafa stolið nýjum farsíma úr verslun M&M að Eyravegi 2 á Selfossi.  Lögreglumenn fundur parið stuttu síðar þar sem það var við verslun Krónunnar.  Karlmaðurinn var með símann í fórum sínum.  Maðurinn sagði símann gamlan og í hans eigu.  Síðar sagðist hann hafa fundið símann við ruslagáma hjá verslun M&M.  Þarna var um sama síma og stolið var úr versluninni.  Sama dag hafði lögregla haft afskipti af konunni eftir að hún var staðinn að því að taka bók úr versluninni fara með hana að afgreiðslukassa og sagði afgreiðslumanni að hún vildi skila bókinni og fá inneignarnótu.  Konan viðurkenndi að hafa ætlað að svíka fjármuni út úr versluninni með þessu.  Fyrr í vetur var þetta par á ferð á Selfossi og í Hveragerði þar sem það stundaði það að stela vörum og svíkja fjármuni út úr verslunum. 

 

Ökumaður var handtekinn á Laugarvatni um helgina eftir að hann ók, ölvaður, í gegnum girðingu við nýbyggingu gufubaðsins á Laugarvatni og hafnaði þar ofan í skurði.  Ökumaður hvarf af vettvangi en fannst skömmu síðar.  Bifreiðina tók maðurinn í óleyfi en hún var ólæst með lykli í kveikjulás á bifreiðastæði við Menntaskólann.  Viðurkenning ökumanns liggur fyrir í málinu auk þess sem vitni voru að atvikinu. 

 

Kona slasaðist minni háttar þegar hestur sem hún reið lenti utan í bifreið sem ekið var fram með hestinum í hesthúsahverfinu á Selfossi í síðustu viku.  Talið er að hesturinn hafi fælst þegar bifreiðinni var ekið framúr honum og knapanum og lent utan í henni með þeim afleiðingum að fótur knapans varð á milli hests og bifreiðar.  Hesturinn slasaðist á fæti við óhappið er hann rakst utan í hliðarspegil.  Konan hlaut mar á fæti og leitaði til læknis og dýralæknir saumaði skurð sem kom á fót hestins.  Lítilst háttar tjón varð á bifreiðinni. 

 

Milli klukkan 17:10 og 17:40 síðastliðinn fimmtudag var ekið á hægra afturhorn grárrar Mercedes Bens bifreiðar sem stóð mannlaus á bifreiðastæði framan við verslun BYKO á Selfossi.  Engar vísbendingar eru um hver hafi ekið á bifreiðina og biður lögregla þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hringja í síma lögreglunnar 480 1010.    


Senda frétt
Til baka

 

 
   
   
 
Vissir þú að....
á sumum gatnamótum í Reykjavík eru sjálfvirkar rauðljósa- og hraðamyndavélar ?
 
  Nafnlausar upplýsingar um fíkniefnamál, mansal o.fl.  
   
  Aksturíþróttir  
   
  Peningaþvættistilkynningar  
   
  Svikapóstur  
   
  Almannavarnir  
   
  English language  
   
  Göngum í skólann  
   
  Innheimtumiðstöð sekta  
   
  Lögreglukonur  
   
  Barnaheill  
   
  Saft.is  
   
  Öruggt spjall  
   
  18 ára ábyrgð  
   
  Fjölmenningarsetur