Kosningahelgin fór vel fram í Árnessýslu. Lögreglumenn höfðu samt sem áður í mörgu að snúast í tengslum við kosningarnar. Þar vó þyngst margs konar aðstoð við kjörstjórnir og flutningur kjörgagna.
Klukkan 05:39 föstudaginn 24. apríl síðastliðinn bárust boð um innbrot í apótek Lyf og heilsu við Unubakka í Þorlákshöfn. Það sást til svartrar Volkswagen Golf bifreiðar aka frá innbrotsstað á þessum tíma. Þjófurinn hafði brotið rúðu til að komast inn og við það skorist þar sem blóðdropar voru eftir hann á staðnum. Öryggiskerfi í apótekinu fór af stað og þjófurinn lagt á flótta en náði að grípa til einhverja lyfja á leið sinni út. Þrátt fyrir leit fannst Golfbifreiðin ekki og þjófurinn er ófundinn. Lögreglan biður þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010.
Uppúr hádegi síðastliðinn föstudag kom upp eldur í sumarbústað í landi Miðengis í Grímsnesi. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu kom á vettvang og slökkti eldinn. Mjög hvasst var á þessum tíma og ótti um að eldur kæmist í gróður. Slökkvistarf gekk greiðlega. Bústaðurinn er mikið brunninn og líklega ónýtur. Rannsóknarlögreglumenn frá tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sáu um tæknirannsókn. Fljótlega vaknaði grunur um íkveikju. Sama dag var fullorðinn karlmaður handtekinn grunaður um að hafa borið eld að húsinu. Hann viðurkenndi að hafa verið valdur að eldsupptökunum. Hann var látinn laus að yfirheyrslum loknum. Rannsókn er á lokastigi og að henni lokinni verður málið sent ríkissaksóknara til frekari ákvörðunar.
Snemma á föstudag valt stór vöruflutningabifreið á Suðurlandsvegi á móts við Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli. Mjög hvasst var þegar óhappið varð og valt bifreiðin þegar sterk vindhviða skall á henni. Ökumaðurinn kastaðist út um framrúðuna þega bifreiðin skall á hliðina fyrir utan veg. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir rannsókn. Hann slapp með minni háttar meiðsli.
Fólksbifreið með þremur ungmennum valt á Suðurstrandarvegi við Hlíðarenda í Ölfusi síðdegis á föstudag. Bifreiðin fór eina veltu og skemmdist mikið. Fólkið slapp við meiðsli. Í ljós kom að ökumaðurinn var ekki með ökuréttindi enda ekki nema 16 ára. |