Aðfaranótt laugardagsins var brotist inn í hesthús sem er í byggingu í Þorlákshöfn og þaðan stolið nokkrum verðmætum rafmagnsverkfærum. Þarna hvarf DeWalt verkfærakassi með ýmiss konar verkfærum, græn Hitachi rafhlöðuborvél í svartri tösku, höggborvél í gráum kassa, heftibyssa í gulum kassa, tveir stórir slípirokkar annar gulur og hinn grár. Þessu til viðbótar var grárri rafsuðuvél stolið. Lögregla biður þá sem veitt geta upplýsingar um þjófnaðinn að hafa samband í síma 480 1010.
Eldur kom upp í útihúsi við frístundarhús í Kerhrauni í Grímsnesi. Eldurinn kviknaði út frá útblástursgrein ljósavélar sem var í húsinu. Eiganda hafði tekist að halda eldinum í skefjum með handslökkvitæki og snjó. Slökkvi- og sjúkralið átt í erfiðleikum með að komast að húsinu vegna mikillrar ófærðar á svæðinu en um þriggja kílómetra leið er frá þjóðvegi að bústaðnum. Einn karlmaður hafði fengið snert af reykeitrun og var fluttur á heilsugæsluna á Selfossi til aðhlynningar. Útihúsið skemmdist talsvert.
Gerð var húsleit í íbúðarhúsi í Hveragerði á laugardagskvöld. Lögrelgumenn höfðu haft grunsemdir um að í húsinu væru vörsluð fíkniefni. Fenginn var úrskurður dómara til leitarinnar. Fíkniefnahundurinn Bea tók þátt í leitinni þar sem fundust tæp tuttugu grömm af nýlega ræktuðu marihuana. Auk þess voru þarna kannabisfræ og neyslutól. Einn maður var handtekinn sem í yfirheyrslu gekkst við að eiga fíkniefninn sem voru haldlögð.
Hvorki meira né minna en átta ökumenn voru kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna um helgina og fjórir fyrir ölvunarakstur. Einn þeirra sem voru undir áfengisáhrifum hafði ekið bifreið sinni útaf veginum skammt frá Aratungu og fest bifreið sína. Hann leitaði ásjár hjá vegfaranda um að draga bifreiðina upp á veg en sá var ekki tilbúin til þess þegar hann fann vínþef af manninum og hringdi í lögreglu. Þegar lögregla kom á staðinn gaf ökumaðurinn þá skýringu að félagi hans hefði ekið bifreiðinni en hann farið af vettvangi. Hann gaf upp nafn félaga síns og þegar átti að finna hann kom í ljós að hann var staddur í flugvél á leið frá Danmörku til Íslands svo ekki gekk það upp. Maðurinn var því handtekinn og við yfirheyrslu næsta dag viðurkenndi hann að hafa ekið bifreiðinni undir áfengisáhrifum og fyrsta frásögn hans verið uppspuni.
Á föstudag fékk lögregla tilkynningu um að á Stokkseyri væri á ferð um götur ungur drengur á fjórhjóli og hefði legið við slysi af akstri hans. Við nánari athugun kom í ljós að þarna hafði verið á ferð 13 ára drengur. Foreldrum drengsins var gerð grein fyrir þeim reglum sem gilda um réttindi og akstur fjórjóla. Drengurinn er ósakhæfur og verður því ekki gerð refsing fyrir brotið en mál hans verður sent barnaverndaryfirvöldum til meðhöndlunar. |