Helgin var tiltölulega róleg hjá lögreglunni í Koópavogi. Ekki var mikið um útköll vegna ölvunar og tíminn því nýttur í umferðareftirlit. Á fimmta tug ökumanna var kærður fyrir að aka of hratt. Umferðaróhöpp voru með fæsta móti eða 5 talsins, öll minniháttar.
Á laugardag kvartaði íbúi í bænum yfir því að ekki væri svefnfriður eftir kl. 5 á morgnanna þar sem nágranni hans væri með hana sem gæludýr. Haninn væri trúr eðli sínu og byrjaði að gala á þessum tíma. Við athugum kom í ljós að rétt reyndist; nágranninn var búinn að útbúa aðstöðu fyrir hanann á svölum sínum. Málið er í skoðun.
Á sunnudag var tilkynnt um innbrot í vinnuskúra við Kleifakór. Þar var verkfærum stolið. Málið er í rannsókn.
Um helgina var tilkynnt um innbrot í bifreið við Harmraborg. Brotin hafði verið hliðarrúða í bifreiðinni og hljómflutningstækjum stolið. Málið er í rannsókn.
|